Breytingar á WorldRanking listanum

  • 4. maí 2022
  • Fréttir

Konráð og Kjarkur eru efstir á WR listanum í 100 m. skeiði. Mynd: Óðinn Örn Jóhannsson

Frá 2022 verður knöpum raðað öðruvísi á listann

Frá og með 2022 verður röðuninni á WorldRanking listunum breytt. Í 25 ár hefur verið raðað á listann eftir frammistöðu knapa óháð hesti en nú verður skipt yfir í röðun parsins, þ.e.a.s knapa og hestsins. Þar af leiðandi getur það gerst að knapi sé skráður nokkrum sinnum á listann með mismunandi hross.

Til að sjá gamla stílinn á WorldRanking listanum er hægt að smella á „Classic WR Ranking“ í valmyndinni.

Eins og undanfarin ár mun listinn innihalda þrjár bestu einkunnir/tíma fyrir hvert par í hverri grein síðustu þriggja ára. Einungis er tekið tillit til einkunna frá 5,50 eða hærra (og jafngildi í tíma). Einkunnirnar/tíminn verður að nást á viðurkenndum FEIF WR mótum.

WorldRanking listinn

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar