Áætla að opna aftur fyrir skráningar á kynbótasýningar á þriðjudaginn

  • 6. maí 2022
  • Fréttir
Eiðfaxi Image
Vegna bilunar í skráningarkerfi fyrir kynbótasýningar – enn er unnið að viðgerð

Það hefur brösulega gengið að skrá á kynbótasýningar en skráningarkerfið á rml.is hefur hrunið ítrekað. Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins hefur nú gefið það út að áætlað sé að opna fyrir skráningar á þriðjudaginn næsta, 10.maí. Einnig kemur fram í sömu fréttatilkynningu að verið sé að skoða að stækka þær sýningar sem mikil aðsókn hefur verið í. Ef WorldFengur er skoðaður þá hefur nú þegar verið bætt við plássum á þær sýningar sem fullt var orðið á þegar kerfið hrundi í gær.

Hægt er að sjá tilkynninguna frá RML í heild sinni hér fyrir neðan:

 

“Áætlað er að opna fyrir skráningar þriðjudaginn 10. maí en einnig er verið að kanna möguleika á að stækka þær sýningar sem ljóst er að aðsókn verður mikil í. Við biðjumst velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta hefur valdið viðskiptavinum okkar.
Nánari upplýsingar verða birtar á heimasíðu okkar á mánudagsmorgun.”

“Við bendum jafnframt á netfangið [email protected] þar sem senda má okkur tölvupóst og við svörum eins fljótt og kostur er.”

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link