Keppt á endurgerðum hringvelli
Firmakeppni Dreyra var haldin hátíðleg 1. maí í Æðarodda:
„Ágætt veður var til mótshalds og voru skráningar 35 talsins. Keppnin fór fram á ný endurgerðum hringvelli sem er bæði 250 og 300 metra auk ríflega 250 metra beinnar brautar. Virtust félagsmenn mjög ánægðir með hvernig til hefur tekist með endurgerð vallarins en efsta lagið var tekið ofanaf og nýtt drenandi burðarleg og fínna efni sett yfir sem virðist ætla að bindast ágætlega. Að lokinni keppni var kaffihlaðborð í félagsheimilinu þar sem félagsmenn og velunnarar þess komu með kræsingar á hlaðborðið og þar fór verðlaunaafhending fram,“ segir í frétt frá Dreyra en úrslit mótsins urðu eftirfarandi:
Pollar
Nafn hestur
Tinna Björg Brynjarsdóttir Ýmir frá Garðabæ
Viktoría Líf Þorsteinsdóttir Vorboði frá Akranesi
Ingibrgur Hjálmarsson Farsæll frá Akranesi
Kristín Guðbjartdóttir Fjöður frá Skipanesi
Matthildur Svana Stefánsdóttir Svanur frá Skipanesi
Börn
Nafn hestur
Unndís Ída Ingvarsdóttir Sperra frá Akranesi
Agnes Rún Marteinsdóttir Arnar frá Barkarstöðum
Hrefna Rún Sigurðardóttir Þyrnirós frá Eiðisvatni
Unglingar
Nafn hestur
Thelma Björk Jónsdóttir Hringur frá Akranesi
Logi Örn Ingvarsson Blær frá Sólvöllum
Anna Sigurbjörg Elíasdóttir Dögg frá n. Skarði
Konur
Nafn hestur
Sif Ólafsdóttir Kopar frá Akranesi
Ulrika Ramund Sóley frá Akurprýði
Sigríður þorsteinsdóttir Vorboði Frá Akranesi
Karlar
Nafn hestur
Benedikt Kristjánsson kolur frá Kirkjuskógi
Hjörleifur Jónsson Darri frá Einhamri
Hrafn Einarsson Vilborg frá Melkoti
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH