Lokamót G. Hjálmarssondeildarinnar
Sunnudaginn 1 maí, fór fram lokamótið í G.Hjálmarssondeildinni þennan veturinn. Að þessu sinni var keppt í tölti T1 í 1. flokk og tölti T3 í 2. flokk, ágætist skráning var í báða flokka. Einnig var keppt í 100 metra flugskeiði.
Í tölti T3 2. flokk var það Daddi Páls á henni Teistu frá Akureyri sem leiddi eftir forkeppni með 6.13 fast á hæla hans voru það nafnarnir Steingrímur Magnússon og Steini frá Skjólgarði með 6.07. Í úrslitum sýndi svo þeir Svanur Berg og Stormur hvers þeir eru megnugir og lönduðu sigrinum með 6.5 í einkunn.
Í 1. flokk voru það kempurnar marg reyndu Viðar Bragason og Þytur frá Narfastöðum sem leiddu eftir forkeppni með 7.2 í einkunn, nartandi í hæla þeirra félaga voru það Guðmundur Karl Tryggvason og hin rauðskjótta Rauðhetta frá Efri-Rauðalæk með 7 slétt í einkunn. Ekkert beit á þá Viðar og Þyt enda mjög einbeitt og vel æfðir félagar, stóðu þeir uppi sem sigurvegarar í tölti T1 með 7.5 í einkunn.
Í skeiði í 2 flokk voru 4 keppendur þar fór með sigur á hólmi Hjörleifur nokkur Sveinbjarnarson og hestur hans Náttar frá Dalvík á tímanum 5.62 næstur á eftir honum var Daddi Páls í lukku peysunni á Tvist frá Garðshorni á 5.68. Því miður lá ekki hjá Svan Berg né Kristni Inga.
Skeið í 1 flokk var það Dalvíkingurinn og skeiðáhugamaðurinn Sveinbjörn Hjörleifsson sem sigraði á hinni Gráu Drífu Drottningu frá Dalvík á tímanum 5.13. Fast á hæla hans voru það Svavar Hreiðars og Baldvin Ari.
Úrslit 2. flokk T3
1. Svanur Berg Jóhannsson og Stormur frá Feti 6.5
2. Hreinn Haukur Pálsson (daddi) og Teista frá Akureyri 6.27
3. Brynhildur Heiða Jónsdóttir og Ásaþór frá Hnjúki 6.22
4. Steingrímur Magnússon og Steini frá Skjólgarði 6.16
5. Kristinn Ingi Valsson og Nóta frá Dalvík 6.00
6. Þórir Áskelsson og Hilmir frá Húsey 5.88
Úrslit 1 flokkur T1
1. Viðar Bragason og Þytur frá Narfastöðum 7.5
2. Guðmundur Karl Tryggvason og Rauðhetta frá Efri-Rauðalæk 7.22
3. Vignir Sigurðsson og Stjörnuþoka frá Liltu-Brekku 7.05
4. Tryggvi Björnsson og Þöll frá Strönd 6.77
5.-6. Ágústa Baldvinsdóttir og Harpa frá Efri- Rauðalæk 6.66
5.-6. Egill Már Vignisson og Bjarmi frá Akureyri 6.66
Skeið 1 flokkur
1. Sveinbjörn Hjörleifsson og Drífa Drottning frá Dalvík 5.13
2.-3. Baldvin Ari Guðlaugsson og Tryggur frá Efri-Rauðalæk 5.35
2.-3. Svavar Örn Hreiðarsson og Surtsey frá Fornusöndum 5.35
4. Tryggvi Björnsson og Viðja frá Borgarnesi 5.42
5. Ágústa Baldvinsdóttir og Rut frá Efri- Rauðalæk 5.46
Nánari niðurstöður eru í kappa appinu
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH