Rúmlega 54.000 hross á Íslandi

  • 15. maí 2022
  • Fréttir
Nákvæmur fjöldi hrossa í landinu óljós

Matvælaráðuneytið heldur utan um fjölda hrossa í landinu en samkvæmt samantekt ráðuneytisins var fjöldi hrossa 54.069 á síðasta ári. Mikið misræmi hefur verið á tölum um fjölda hrossa síðustu ár og talning á þeim í ólestri. Vegna þessa gefur ráðuneytið einnig upp áætlaðan fjölda á árinu 2021 eða 69.500 hross.

Fjöldi hrossa hefur verið mjög á reiki síðan talning forðagæslumanna var aflögð fyrir nokkrum árum og ekki tekist að fá áreiðanlegar tölur um hrossastofninni í landinu síðan þá.

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar