Fákur – námskeið í jólagjöf
Skráning á námskeið fræðslunefndar Fáks fyrir 18 ára og eldri miðvikudaginn 16. desember kl.19:00 í félagsheimili Fáks.
Einungis hægt að skrá á staðnum ekki tekið við skráningum í gegnum síma!
Greitt er við skráningu „Athugið tilvalin jólagjöf!!!!“
Skráð verður á eftirfarandi námskeið:
Knapamerki 1.stig. Kennari: Sif Jónsdóttir. Kennsla hefst aðra viku í janúar. Kennt tvisvar í viku 10 verklegir tímar 1 bóklegur tími. Verð kr. 22.000.-
Knapamerki 3.stig. Kennarar: Sigrún Sigurðardóttir og Róbert Petersen. Kennsla hefst aðra viku í janúar. Kennt tvisvar í viku 25 verklegir tímar, 1 bóklegur tími. Verð kr. 53.000.-
Knapamerki 4. stig. Kennari: Sigrún Sigurðardóttir. Kennsla hefst aðra viku í janúar. Kennt tvisvar í viku 25 verklegir tímar 1 bóklegur tími. Verð 53.000.-
Allir sem huga hafa á að taka stöðupróf, sem verða sennilega í fyrstu vikunni í janúar, verða að skrá sig á námskeið og láta vita við skráningu.
Keppnisnámskeið I. Þjálfun og undirbúningur keppnishests. Kennari: Olil Amble. Kennsla hefst í fyrstu vikunni í janúar. Kennt einu sinni í viku á þriðjudögum. 9 verkleigir tímar og 1 bóklegur tími. Verð kr 27.500.- 3 í hóp. ATH einungis 9 manns komast að.
Keppnisnámskeið II. Kennari Olil Amble. Kennsla hefst um miðjan mars, Kennt einu sinni í viku á þriðjudögum. 8 verklegir tímar og 2 bóklegir tímar. Verð kr. 37.500.- 2 í hóp. ATH einungis 12 manns komast að.
ATH Skráning á önnur námskeið verða auglýst síðar, s.s. almenn námskeið og knapamerki 2 sem hefst um miðjan febrúar (skráning í lok janúar).
Námskeiðin eru ætluð félagsmönnum Fáks, fögnum nýjum Fáksfélögum!
Skráning á knapamerki eitt til fimm á vegum æskulýðsdeildar verður fimmtudaginn 17. des. Í félagsheimili Fáks kl. 18:00 Skráning á staðnum. Nánari upplýsingar um verð verða birt eftir helgi á vef Fáks.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH