Metamót

  • 2. september 2016
  • Fréttir
Eiðfaxi Image
Niðurstöður úr B flokknum.

Þá er forkeppni í feiknasterkum B-flokki lokið á Metamóti Spretts. Langefstur eftir forkeppnina stendur glæsihesturinn Oddi frá Hafsteinsstöðum ásamt knapa sínum Skapta Steinbjörnssyni með 8,91. Í öðru sæti er Kaspar frá Kommu og Arnar Bjarki Sigurðarson og í því þriðja Hrafn frá Breiðholti í Flóa og Bjarni Sveinsson. Bæði Kaspar og Hrafn hlutu einkunnina 8,69 en Kaspar raðast hærri á aukastöfum.

Í áhugamannaflokki stendur efstur Október frá Oddhóli og Birta Ingadóttir með 8,49. Í öðru sæti er Þjóðólfur frá Þjóðólfshaga og Þorvarður Friðbjörnsson. Í því þriðja er svo Óðinn frá Ingólfshvoli og Atli Freyr Maríönnuson.

Þessir ríða úrslit úrslit í B-flokki opnum flokki:

A-úrslit
1 Oddi frá Hafsteinsstöðum Skapti Steinbjörnsson 8,909
2 Kaspar frá Kommu Arnar Bjarki Sigurðarson 8,694
3 Hrafn frá Breiðholti í Flóa Bjarni Sveinsson 8,691
4 Þrumufleygur frá Álfhólum Hinrik Bragason 8,674
5 Þórólfur frá Kanastöðum Sindri Sigurðsson 8,666
6 List frá Langsstöðum Sigurður Sigurðarson 8,651
7 Dáð frá Jaðri Sigurður Sigurðarson 8,646

B-úrslit 
8 Þytur frá Narfastöðum Viðar Bragason 8,603
9 Hrannar frá Hárlaugsstöðum 2 Lena Zielinski 8,600
10 Sprengihöll frá Lækjarbakka Lena Zielinski 8,597
11 Védís frá Jaðri Ólafur Ásgeirsson 8,591
12 Sproti frá Sauðholti 2 Jóhann Kristinn Ragnarsson 8,591
13 Póstur frá Litla-Dal Hinrik Bragason 8,571
14 Auðdís frá Traðarlandi Ríkharður Flemming Jensen 8,560
15 Dögun frá Mykjunesi 2 Sigurður Vignir Matthíasson 8,557

 

Þessir ríða úrslit í B-flokki áhugamanna:

A-úrslit
1 Október frá Oddhóli Birta Ingadóttir 8,494
2 Þjóðólfur frá Þjóðólfshaga 1 Þorvarður Friðbjörnsson 8,483
3 Óðinn frá Ingólfshvoli Atli Freyr Maríönnuson 8,443
4 Nasa frá Útey 2 Arna Snjólaug Birgisdóttir 8,394
5 Hrímar frá Lundi Gústaf Fransson 8,386
6 Kraftur frá Votmúla 2 Sverrir Einarsson 8,371
7 Óskar Þór frá Hvítárholti Guðrún Margrét Valsteinsdóttir 8,357

B-úrslit 
8 Urður frá Miðhrauni Dagmar Öder Einarsdóttir 8,349
9 Gormur frá Herríðarhóli Lára Jóhannsdóttir 8,343
10 Von frá Bjarnanesi Jóhann Ólafsson 8,337
11 Elding frá V-Stokkseyrarseli Lea Schell 8,334
12 Sævar frá Ytri-Skógum Ingi Guðmundsson 8,331
13 Hrefna frá Akureyri Hrefna Hallgrímsdóttir 8,317
14 Mói frá Álfhólum Saga Steinþórsdóttir 8,306
15 Djörfung frá Reykjavík Jóhann Ólafsson 8,294

 

Önnur úrslit dagsins má finna á:

http://sprettarar-public.sharepoint.com/DomarUtgefidEfni/Metamot/urslit/B-Flokkur-Forkeppni.aspx

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link