Landsmótslagið „Drottning um stund“

  • 22. maí 2022
  • Fréttir
Fríða Hansen og Hreimur Örn Heimisson sendu frá sér nýtt Landsmótslag

Tónlist og hestamennska hefur alla tíð farið vel saman. Á föstudaginn síðasta sendu þau Fríða Hansen og Hreimur Örn Heimisson frá sér Landsmótslagið „Drottning um stund”. Eiðfaxi heyrði í Fríðu sem er mikil hestakona, menntaður reiðkennari frá Hólaskóla og spurði hana um tilurð lagsins.

“Hugmyndin er búin að vera lengi í gerjun en pabbi, Anders Hansen, talaði um þetta við mig og systir mína, Önnu, þegar Landsmót var síðast á Hellu. Við höfum verið með þetta á bak við eyrað síðan, en í janúar og febrúar fórum við að leiða hugann að þessu að alvöru. Þegar samkomubanni var aflétt þá fórum við af stað. Þá var ég byrjuð að vinna með Vigni Snæ Vigfússyni og hann kom með okkur í þetta en við Anna og Vignir sömdum lagið,” segir Fríða en textinn við lagið er með vísun í hestamennsku, landsmót og góða stemmingu. “Heiti lagsins er tilvitnun í ljóð Einars Ben sem við hestamenn könnumst vel við Kóngur um stund en við breyttum því í Drottning um stund. Það kemur þó fram einu sinni í laginu Kóngur um stund en það var meira við hæfi að láta Hreim syngja það.” segir Fríða að lokum.

Lagið má finna á öllum helstu streymisveitum

Texti

Drottning um stund
Lag: Anna Hansen, Fríða Hansen og Vignir Snær Vigfússon
Texti: Anna & Fríða Hansen

Mig dreymir um samverustund
Eiga góðan vinafund
Allan veturinn hlökkum við til,
vera saman, létt í lund

Því um sumarkvöld er best að gleðjast
Eiga´ á góðum hesti gleðistund
Við dagrenningu draumar rætast
á um leið, verð ég drottning um stund

Á landsmóti erum
Og syngjum nú dátt
Því lífið er leikur
Nú lifum við hátt

Í tjaldi er dansað og kysst
Þar er sungið af hjartans list
Þessi nótt verður löng, björt og hlý
Uns dagur rís á ný

Því um sumarkvöld er best að gleðjast
Eiga´ á góðum hesti gleðistund
Við dagrenningu draumar rætast
Þá um leið, verð ég kóngur um stund

Á landsmóti erum
Og syngjum nú dátt
Því lífið er leikur
Nú lifum við hátt

Á landsmóti erum
Og syngjum nú dátt
Því lífið er núna
Við lifum í sátt

Eins og fuglinn sem flýgur
Fer fákur sína leið
Eftir brautinni svífur
Þá er ég, drottning um stund

Á landsmóti erum
Og syngjum nú dátt
Því lífið er leikur
Nú lifum við hátt

Á landsmóti erum
Og syngjum nú dátt
Því lífið er núna
Við lifum í sátt

Á landsmóti erum
Og syngjum nú dátt
Því lífið er leikur
Nú lifum við hátt

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar