Fyrstu kynbótasýningu ársins hér á landi lokið
Magni frá Stuðlum var hæst dæmda hross sýningarinnar en hann var sýndur af Árna Birni Pálssyni. Mynd: Nicki Pfau
Fyrstu kynbótasýningu ársins hér á landi er lokið. Sýningin fór fram á Hellu og hófst hún á mánudaginn og lauk með yfirlitssýningu í dag.
Alls voru 27 hross sýnd í fullnaðardómi og fóru 16 þeirra í 1. verðlaun.
Hæst dæmdi stóðhestur sýningarinnar og hæst dæmda hross sýningarinnar er hinn 6 vetra gamli Magni frá Stuðlum. Hann hlaut fyrir sköpulag 8,72, fyrir hæfileika 8,47 sem gerir 8,56 í aðaleinkunn. Magni var hæst dæmdi fimm vetra hesturinn í fyrra og hækkaði hann á sýningunni en áður var hann með 8,52 í aðaleinkunn. Árni Björn Pálsson sýndi klárinn en Magni er undan Konsert frá Hofi og Stöku frá Stuðlum. Ræktandi Magna er Páll Stefánsson og Edda Björk Ólafsdóttir en eigendur eru þau ásamt Hrafnkeli Áka Pálssyni og Ólafi Tryggva Pálssyni. Magni hlaut m.a. 9,5 fyrir skeið og 9,0 fyrir samstarfsvilja, samræmi, fótagerð, hófa og prúðleika.

Magni frá Stuðlum hlaut 9,5 fyrir skeið en hann var sýndur af Árna Birni Pálssyni. Mynd: Nicki Pfau
Hæst dæmda hryssa sýningarinnar var Þyrnirós frá Rauðalæk, 7 vetra Sjóðsdóttir og undan Logadís frá Syðra-Garðshorni. Ræktandi Þyrnirósar er Pabbastrákur ehf. og eigandi Takthestar ehf. en á bakvið Takthesta eru þau Guðmundur Björgvinsson og Eva Dyröy. Guðmundur sýndi hryssuna og hlaut hún fyrir sköpulag 8,76, fyrir hæfileika 8,42 sem gerir 8,54 í aðaleinkunn. Hryssan hlaut m.a. 9,0 fyrir samstarfsvilja, háls, herðar og bóga, samræmi, prúðleika og bak og lend.
Þá var hinn fjögurra vetra Hraunhamar frá Ragnheiðarstöðum sýndur en hann hlaut 8,15 í aðaleinkunn, en hann er sýndur sem klárhestur. Hann hlaut m.a. 9,0 fyrir tölt, greitt og hægt stökk, fegurð í reið og háls, herðar og bóga.
Hér fyrir neðan eru hrossin sem sýnd voru á sýningunni
| Hross á þessu móti | S | H | Ae. | Sýnandi |
| IS2016187108 Magni frá Stuðlum | 8,72 | 8,47 | 8,56 | Árni Björn Pálsson |
| IS2015281908 Þyrnirós frá Rauðalæk | 8,76 | 8,42 | 8,54 | Guðmundur Friðrik Björgvinsson |
| IS2015186669 Blesi frá Heysholti | 8,58 | 8,31 | 8,4 | Árni Björn Pálsson |
| IS2017281512 Mjallhvít frá Sumarliðabæ 2 | 8,19 | 8,44 | 8,35 | Árni Björn Pálsson |
| IS2014187660 Ljósálfur frá Syðri-Gegnishólum | 8,56 | 8,22 | 8,34 | Olil Amble |
| IS2016181905 Sesar frá Rauðalæk | 8,51 | 8,17 | 8,29 | Guðmundur Friðrik Björgvinsson |
| IS2016201167 Artemis frá Prestsbæ | 8,37 | 8,22 | 8,27 | Guðmundur Friðrik Björgvinsson |
| IS2017201571 Eyrún frá Sægarði | 7,83 | 8,45 | 8,23 | Aðalheiður Anna Guðjónsdóttir |
| IS2017201717 Fold frá Hrafnshóli | 8,04 | 8,33 | 8,23 | Árni Björn Pálsson |
| IS2016201326 Lára frá Agöthuhofi | 8,38 | 8,04 | 8,16 | Aðalheiður Anna Guðjónsdóttir |
| IS2018182575 Hraunhamar frá Ragnheiðarstöðum | 8,27 | 8,08 | 8,15 | Árni Björn Pálsson |
| IS2016276176 Saga frá Ketilsstöðum | 8,01 | 8,22 | 8,15 | Olil Amble |
| IS2016187900 Dagur frá Skeiðháholti | 8,33 | 7,97 | 8,1 | Aðalheiður Anna Guðjónsdóttir |
| IS2015186907 Greifi frá Feti | 8,25 | 7,98 | 8,08 | Ólafur Andri Guðmundsson |
| IS2017236415 Ljósfríður frá Lundum II | 8,25 | 7,96 | 8,06 | Árni Björn Pálsson |
| IS2017287660 Álfatrú frá Syðri-Gegnishólum | 8,11 | 8,02 | 8,05 | Olil Amble |
| IS2015184501 Elliði frá Skíðbakka III | 8,35 | 7,8 | 7,99 | Árni Björn Pálsson |
| IS2017187426 Gyllir frá Oddgeirshólum | 8,01 | 7,92 | 7,95 | Helga Una Björnsdóttir |
| IS2017286908 Erla frá Feti | 7,91 | 7,95 | 7,94 | Ólafur Andri Guðmundsson |
| IS2017201035 Kamma frá Margrétarhofi | 7,99 | 7,88 | 7,92 | Aðalheiður Anna Guðjónsdóttir |
| IS2016286901 Varða frá Feti | 8 | 7,83 | 7,89 | Ólafur Andri Guðmundsson |
| IS2018267175 Ársól frá Sauðanesi | 8,06 | 7,77 | 7,87 | Aðalheiður Anna Guðjónsdóttir |
| IS2018184624 Kiljan frá Miðkoti | 8,1 | 7,65 | 7,81 | Ólafur Þórisson |
| IS2018184620 Fáfnir frá Miðkoti | 7,97 | 7,66 | 7,77 | Ólafur Þórisson |
| IS2014282485 Ísrún frá Dvergasteinum | 8,16 | 7,54 | 7,76 | Jakob Svavar Sigurðsson |
| IS2014286764 Alfa frá Árbæjarhjáleigu II | 7,6 | 7,75 | 7,7 | Árni Björn Pálsson |
| IS2017281555 Gæfa frá Fagurhóli | 8 | 7,42 | 7,62 | Aðalheiður Anna Guðjónsdóttir |
| IS2018284502 Fljóð frá Skíðbakka III | 8,24 | Sara Pesenacker | ||
| IS2018184551 Heiðskír frá Þúfu í Landeyjum | 8,36 | Elvar Þormarsson | ||
| IS2018156006 Rómeó frá Röðli | 8,17 | Þorgeir Ólafsson | ||
| IS2018184502 Sælingur frá Skíðbakka III | 8,06 | Sara Pesenacker |
‘
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH