Gæðingamót Sörla og úrtaka fyrir Landsmót
Gæðingamót Sörla og úrtaka fyrir Landsmót 2022 fer fram dagana 2.-5. júní næstkomandi á Hraunhamarsvellinum við Sörlastaði. Gæðingahluti mótsins er lokaður þar sem um úrtöku fyrir Landsmót er að ræða, en T1 og 100m skeið verður opið öllum.
Boðið er upp á tvær umferðir í úrtöku fyrir Landsmót.Keppt verður í eftirfarandi flokkum:
- A flokkur opinn – 6.000 kr
- A flokkur Áhugamanna (gæðingaflokkur 2) – 6.000 kr
- B flokkur opinn – 6.000 kr
- B flokkur Áhugamanna (gæðingaflokkur 2) – 6.000 kr
- Barnaflokkur – 5.000 kr
- Unglingaflokkur – 5.000 kr
- Ungmennaflokkur – 5.000 kr
- Tölt T1 – 7.500 kr
- 100 m fljúgandi skeið – 5.000 kr
Úrtaka fyrir Landsmót
Mikilvægt að allir knapar sem vilja hafa möguleika á að komast inn á Landsmót fyrir hönd Sörla skrái sig í fyrri umferð úrtöku þann 2. og 3. júní. Forkeppnir í opnum flokkum gilda inn á Landsmót. Knapar sem stefna á Landsmót skulu því skrá sig í Opinn Flokk. Knapi sem hefur hug á að ríða seinni umferð í úrtöku þarf að hafa riðið þá fyrri. Skráning í seinni umferð er valkvæð, en allir sem sækjast eftir sæti á landsmóti þurfa að vera skráðir í fyrri umferð. Inn á Landsmót gildir betri árangur hests (knapi og hestur í yngri flokkum) úr báðum umferðum. Ætli knapi að taka þátt í mótinu en hefur EKKI hug á að vinna sér sæti á landsmóti skráir hann sig eingöngu á Gæðingamót – seinni umferð og getur þá átt kost á að komast í úrslit á sunnudag. Í áhugamannaflokki (gæðingaflokki 2) er eingöngu ein forkeppni (laugardaginn 4. júní) og úrslit sunnudaginn 5. júní. Þessi flokkur vinnur sér EKKI inn sæti á landsmóti. Knapar eru hvattir til að skrá sig í opna flokka til að eiga möguleika á sæti á landsmóti. Athugið að inni á Sportfeng er sitt hvor skráningin fyrir Gæðingamót Sörla fyrri og seinni umferð. Hestur sem keppir þarf að vera í eigu Sörlafélaga og í yngri flokkum þurfa knapar að vera félagsmenn í Sörla og hestur í eigu Sörlafélaga Ef vandræði koma upp í skráningu hafið samband á motanefnd@sorli.is eða við Anítu formann mótanefndar í síma 777 3426 eða Elvar 846 2810 Drög að dagskrá er eftirfarandi en nánari dagskrá verður birt þegar skráning á mótið liggur fyrir. Gæðingamót Sörla fyrri úrtaka fyrir Landsmót Fimmtudagur 2. júní A-flokkur (opinn flokkur) Barnaflokkur Föstudagur 3. júní B flokkur (opinn flokkur) Unglingaflokkur Ungmennaflokkur Gæðingamót Sörla seinni úrtaka fyrir Landsmót Laugardagur 4. júní A flokkur opinn A flokkur Áhugamanna (gæðingaflokkur 2) B flokkur opinn B flokkur Áhugamanna (gæðingaflokkur 2) Barnaflokkur Unglingaflokkur Ungmennaflokkur Tölt T1 Sunnudagur 5. júní Úrslit 100 m fljúgandi skeið Skráning er nú opin og stendur til 24:00 sunnudagins 29. maí. Mótanefnd Sörla