Barátta um kommurnar
Í flokki fimm vetra stóðhesta eiga bræðurnir Ómur og Oliver frá Kvistum tvo fulltrúa hvor um sig. Fimm vetra flokkurinn var svipaður af stærð og elsti flokkur stóðhesta en alls voru sýndir 166 hestar í þessum flokki sem er tæplega þriðjungur sýndra stóðhesta í ár. Efstu hestarnir eru allir Íslandsfæddir fyrir utan einn, Rösk fra Skjød, sem kemur frá Danmörku. Efstur fimm vetra stóðhesta er Andvari frá Auðsholtshjáleigu en hann varð heimsmeistari í Herning í sumar. Sýnandi Andvara var Árni Björn Pálsson en Andvari hlaut fyrir hæfileika 8,52 og fyrir sköpulag 8,74.
Jafnir í öðru og þriðja sæti eru þeir Starri frá Herríðarhóli og Atlas frá Hvoli en einungis komma skilur þá að frá fyrsta sætinu. Starri er staðsettur í Þýskalandi en Daníel Jónsson sýndi hann og hlaut Starri fyrir hæfileika 8,88 og fyrir sköpulag 8,18. Fyrir tölt, fegurð í reið og skeið hlaut hann 9,0 og fyrir vilja og geðslag hlaut hann 9,5. Atlas frá Hvoli er staðsettur í Svíþjóð en það var Vignir Jónasson sem sýndi hann. Atlas hlaut 9,0 fyrir brokk, skeið, stökk, fegurð í reið og vilja og geðslag.
5 vetra stóðhestar
8.61 Andvari frá Auðsholtshjáleigu Gári Auðsholtshjáleigu Fold Auðsholtshjáleigu Ísland
8.60 Starri frá Herríðarhóli Ágústínu Melaleiti Hylling Herríðarhóli Ísland
8.60 Atlas frá Hvoli Seiður Flugumýri II Hryðja Hvoli Ísland
8.58 Roði frá Lyngholti Ómur Kvistum Glóð Kálfholti Ísland
8.55 Logi frá Oddsstöðum I Oliver Kvistum Brák Oddsstöðum I Ísland
8.44 Völsungur frá Skeiðvöllum Ómur Kvistum Vaka Arnarhóli Ísland
8.42 Ferill frá Búðarhóli Ómur Kvistum Embla Búðarhóli Ísland
8.42 Hlekkur frá Ytra-Vallholti Arnoddur Auðsholtshjáleigu Gnótt Ytra-Vallholti Ísland
8.40 Röskur fra Skjød Tjörvi Sunnuhvoli Rakel Skíðbakka I Danmörk
8.39 Vegur frá Kagaðarhóli Seiður Flugumýri II Ópera Dvergsstöðum Ísland
8.39 Hildingur frá Bergi Uggi Bergi Hilda Bjarnarhöfn Ísland
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH