Það stefnir í veislu á Landsmóti

  • 2. júní 2022
  • Fréttir

Safír frá Mosfelsbæ og Sigurður Vignir Matthíasson í úrtöku fyrir Landsmót hjá Fáki

Úrtökur hafnar og nóg um að vera á öllum vígstöðum

Úrtökur eru farnar af stað og munu halda áfram næstu helgar. Um helgina er t.d. úrtaka fyrir Landsmót í Spretti, á Selfossi og á Vesturlandi svo eitthvað sé nefnt. Kynbótasýningar eru í fullum gangi og munu halda áfram næstu vikur. Það má því segja að nóg sé um að vera í hestamennskunni þessa dagana og hestakostur Landsmóts er farinn að taka á sig mynd.

Það voru engin smá úrslit í Fáki síðustu helgi þar sem þrír hestar fóru yfir 9,00 í einkunn í a flokki og b flokki en þetta voru þeir Leynir frá Garðshorni á Þelamörk, Ljósvaki frá Valstrýtu og Safír frá Mosfellsbæ.

Leynir hlaut 9,08 í úrslitunum en knapi á Leyni var Eyrún Ýr Pálsdóttir. Sem stendur er Leynir efstur á stöðulistanum í a flokknum með 8,74 í einkunn sem hann hlaut í forkeppni. Þetta var fyrsta keppnin hans Leynis í a flokk en ekki sú fyrsta hjá Eyrúnu en hún sigraði A flokk á Landsmóti 2016 á Hrannari frá Flugumýri. Þau Eyrún og Leynir hljóta að teljast sigurstrangleg á Landsmótinu á Hellu nú í byrjun júlí.

Fyrir síðasta Landsmót, 2018 í Reykjavík, stóð efstur á stöðulista Arion frá Eystra-Fróðholti með 8,82 í einkunn, hann kláraði þó aldrei keppnina á Landsmótinu og eftir sérstöku forkeppnina stóð efstur Hafsteinn frá Vakurstöðum, knapi Teitur Árnason, þeir héldu forustunni í gegnum milliriðla og stóðu uppi sem sigurvegarar með 9,09 í einkunn.

Leynir frá Garðshorni og Eyrún Ýr Pálsdóttir í a úrslitum á gæðingamóti Fáks, síðastliðna helgi. Mynd: Nicki Pfau

 

Í b flokknum á gæðingamóti Fáks öttu þar kappi saman tveir feikna sterkir hestar Ljósvaki frá Valstrýtu, knapi Árni Björn Pálsson, og Safír frá Mosfellsbæ, knapi Sigurður V. Matthíasson. Það munaði einungis 0,08 á þeim en Ljósvaki hlaut 9,19 í einkunn og Safír 9,11 í einkunn. Þetta er ekki frumraun hjá þeim Ljósvaka og Árna í b flokki en þeir gerðu m.a. atlögu að Landsmótssigri 2018 og enduðu þar í 4. sæti með 8,92 í einkunn. Frami frá Ketilsstöðum sigraði b flokkinn á Landsmótinu með knapa sínum Elinu Holst með einkunnina 9,14.

Safír vakti mikla athygli í Fáki síðustu helgi enda frumraun kappans í b flokki. Alls ekki slæmur árangur á fyrsta móti og verður spennandi að sjá hvað allir þessir gæðingar munu gera á Landsmótinu á Hellu, 3. – 10. júlí.

Ljósvaki frá Valstrýtu og Árni Björn Pálsson Mynd: Nicki Pfau

Hér fyrir neðan er hægt að sjá myndband af þessum þremur stóðhestum. Myndbandið er frá Alendis.is en þar er hægt að horfa á flest öll mót og kynbótasýningar í beinni og þegar þér hentar.

Leynir frá Garðshorni á Þelamörk

 

Ljósvaki frá Valstrýtu og Safír frá Mosfellsbæ

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link