Sameiginlega úrtaka hjá Geysi, Sindra, Kóp og Jökli
Skráning er hafin í sameiginlega úrtöku hestamannafélaganna Geysis, Sindra, Kóps og Jökuls sem fer fram helgina 10-12.júní 2022. Keppt verður í A-flokki, B-flokki, Barnaflokki, Unglingaflokki og Ungmennaflokki. Riðnar verða tvær umferðir, sú fyrri á föstudag og laugardag, sú seinni á sunnudeginum. Allir verða að taka þátt í fyrri umferð til að hafa möguleika á að taka þátt í seinni umferðinni. Engin úrslit verða. Úrtakan fer fram á Rangárbökkum við Hellu þar sem Landsmót 2022 mun fara fram í sumar.
Skráning er hafin í sportfeng í fyrri umferð (aðildarfélag er Geysir) og lýkur mánudaginn 6.júní kl 23:59. Við biðjum alla að skrá sig sem fyrst og helst fyrir mánudag til að vera ekki á seinustu stundu.
Skráning í seinni umferð fer fram í sportfeng (aðildarfélag er Geysir). Skráning í seinni umferð hefst svo í vikunni og lýkur á laugardagskvöld, fljótlega eftir að fyrri umferð er lokið. Rásröð í seinni umferð er öfug rásröð fyrri umferðar.
Ef vandræði koma upp er hægt að hafa samband í síma 8637130.
Afskráningar fara fram í síma 8637130.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH