Spádómar um knapavalið
Helgi Þór Guðjónsson tamningamaður og reiðkennari Kolsholti II
„Ég vill biðja á því að óska öllum þeim knöpum sem hlutu tilnefningar í hverjum flokki innilega til hamingju með góðan árangur á síðastliðnu keppnistímabili
Íþróttaknapi ársins: Árni Björn Pálsson, ver landsmótstitil sinn í tölti og sigrar einnig íslandsmótið. Einnig sigurvegari meistaradeildar og 2 sætið í fimmgang á íslandsmóti, ásamt fleiru.
Gæðingaknapi ársins: Eyrún Ýr Pálsdóttir fyrir sigur í A-flokki gæðinga á Landsmóti. Að mínu mati ótvíræður sigurvegari. Stóð sig vel bæði í forkeppni,milliriðlum og úrslitum.
Skeiðknapi ársins: Bjarni Bjarnason. Í mínum huga engin spurning þar sem heimsmet í 250 metra skeiði er ekki slegið á hverjum degi.
Kynbótaknapi ársins: Árni Björn Pálsson, margar fallegar sýningar koma upp í hugann og þá sérstaklega sýningin á Ljósvaka frá Valstrýtu. Ofarlega eða sigurvegari í flestum flokkum kynbótahrossa á landsmóti.
Efnilegasti knapi ársins: Dagmar Öder Einarsdóttir, mjög vaxandi á síðastliðinu keppnisári með frábæran heildarárangur bæði á landsmóti, íslandsmóti og í skeiðgreinum.
Keppnishestabú ársins: Syðri-Gegnishólar. Mörg hross frá þeim Berg og Olil í fremstu röð. Frami og Katla þar í sérflokki. Frami magnaður á Íslandsmóti vinnur T2 og fjórgang og Katla með frábærar töltsýningar bæði á landsmóti og íslandsmóti. Einnig voru þau bæði í A-úrslitum í B-flokk á LMþ
Knapi ársins: Árni Björn Pálsson, tilnefndur í þremur flokkum og er með stórglæsilegan árangur á öllum sviðum.
Erla Guðný Gylfadóttir íþrótta-, gæðingadómari og nemi við Lbhí
Íþróttaknapi ársins: Nokkrir líklegir á þessum lista. Árni var mjög áberandi í byrjun keppnistímabilsins átti mörg góð mót innanhúss og svo auðvitað sigur í tölti á LM og ÍM á Stormi frá Herríðarhóli. Það vegur þungt. Jakob og Hulda hafa líka verið áberandi og drjúg á mörgum stórum mótum.
Gæðingaknapi ársins: Sigur á LM er veigamikill að mínu mati. Þar er Eyrún með sigur í A-flokki gæðinga og Jakob með sigur í B-flokki gæðinga. Svo er spurnig hvað þau hafa verið að gera meira á árinu í þessum flokki. Myndi veðja á annaðhvort þeirra
Skeiðknapi ársins: Er ekki nógu vel að mér í þessum flokki en yngri knaparnir hafa verið að koma þarna sterkir inn, Helga Una, Bjarni Bjarna og Konráð Valur. Bjarni gerði mjög góða hluti á LM á Heru frá Þóroddsstöðum og fleiri mótum. Ég veðja á Bjarna.
Kynbótaknapi: Árni Björn og Daníel hafa verið áberandi þarna. Með mörg hross og góð. Fleiri atriði sem þarf að skoða í því samhengi. Það verður annar hvor þeirra myndi ég halda.
Efnilegasti knapi: Allt flottir krakkar. Dagmar Öder er með góðan og breiðan árangur á árinu. Íslandsmeistari í 4 gangi og í A – úrslitum á LM í ungmennafl. Prúður knapi sem ætti líka að telja. Veðja á hana.
Keppnishestabú ársins: Frá S – Gegnishólum koma sterkir keppnishestar. Þeir eru staðsettir i mörgum löndum. Held þau hafi vinninginn. Efri Rauðalækur er keppnishestabú sem er líka alltaf að minna á sig.
Knapi ársins: Með fullri virðingu fyrir öðrum sem tilnefndir hafa verið í öðrum flokkum þá trúi eg ekki öðru en Árni Björn verði knapi ársins. Hefur sýnt þvílíkan metnað og fagmennsku í sinni hestamennsku. Sem skilar þessum breiða og mikla keppnisárangri.
Fríða Hansen nemi við Háskólann á Hólum
Íþróttaknapi ársins: Mér finnst Jakob Svavar líklegur en hann hefur átt margar stórglæsilegar sýningar á árinu.
Gæðingaknapi ársins: Eyrún Ýr væri vel að því komin, flottur og flinkur knapi og gaman að sjá hana á Landsmótinu.
Skeiðknapi: Helga Una Björnsdóttir! Alltaf fallegir sprettir og reiðmennska til fyrirmyndar.
Kynbótaknapi: Ekki viss, en gæti vel trúað Árna Birni til að taka titilinn.
Efnilegasti knapi: Dagmar Öder sýnir bæði íþróttamannslega hegðun innan sem utan vallar og mér finnst hún eiga titilinn skuldlaust
Keppnishestabú ársins: Syðri-Gegnishólar mjög líklega
Knapi ársins: Jakob Svavar Sigurðsson
Hjörvar Ágústsson, tamingamaður og reiðkennari Kirkjubæ
Íþróttaknapi: Mjög sterkir knapar í þessum flokki. Finnst þetta vera á milli Árna Björns og Huldu Gústafs og að þessu sinni held ég að það sé Hulda.
Gæðingaknapi: Jakob Svavar. Sigrar B-flokk og þriðji í A-flokk. Erfitt að toppa þann árangur.
Skeiðknapi: Bjarni Bjarnason. Frábært ár hjá honum, minnir að hann sé með einn af topp 5 tímunum í ár á Íslandi í öllum greinum. Setur einnig heimsmet.
Kynbótaknapi: Frábært ár hjá mörgum en eins og síðustu ár skera tveir sig úr þeir Daníel Jónsson og Árni Björn. Báðir með svo margar frábærar sýningar að erfitt er að átta sig á hvor hlýtur titillinn en ég segi Árni Björn
Efnilegasti knapi: Dagmar Ōder átti frábært ár.
Keppnishestabú ársins: Held að Syðri-Gegnishólar taki þetta með Kötlu og Frama fremst í flokki
Knapi ársins: Margir góðir en að mínu mati er það Jakob Svavar Sigurðsson. Átti margar frábærar sýningar á kynbótabrautinni og náði magnaðri þrennu á Landsmótinu þegar hann sigraði B-flokkinn, varð annar í töltinu og Þriðji í A-flokknum. Einstaklega fjölhæfur og fágaður reiðmaður
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH