Síðasta vikan af vorsýningum
Telma frá Árbakka hlaut 8,83 fyrir hæfileika í dag á Hellu, sýnandi Hinrik Bragason. Mynd: Nicki Pfau
Síðasta vika vorsýninga er gengin í garð en sýnt er á fjórum stöðum; Selfossi, Hafnarfirði, Hólum og Hellu. Hægt er að nálgast dóma á öllum þessum sýningum inn á WorldFeng.
Efst á Selfossi eins og er er hin sjö vetra Ísdís frá Árdal en hún hlaut fyrir sköpulag 8,34, fyrir hæfileika 8,64 og í aðaleinkunn 8,54. Það var Ragnhildur Haraldsdóttir sem sýndi hryssuna. Ísdís er undan Sprota frá Innri-Skeljabrekku og Ísbrún frá Syðstu-Fossum.
Fróði frá Flugumýri stóð efstur fjögurra vetra stóðhesta í fyrra en hann var sýndur aftur í dag á Selfossi. Hann bætti töluvert við sig og er nú með 8,64 fyrir sköpulag og 8,39 fyrir hæfileika sem gerir 8,48 í aðaleinkunn. Það var ræktandi hans og eigandi Eyrún Ýr Pálsdóttir sem sýndi Fróða. Fróði er undan Hring frá Gunnarsstöðum I og Fýsn frá Feti.
Efst á Hólum er Birta frá Íbishóli sýnd af Guðmari Frey Magnússyni. Birta hefur hlotið fyrir sköpulag 8,14, fyrir hæfileika 8,37 sem gerir 8,29 í aðaleinkunn. Birta er 6 vetra undan Snillingi frá Íbishóli og Seylu frá Efra-Langholti.
Telma frá Árbakka stendur efst á sýningunni á Hellu en hún hefur hlotið fyrir sköpulag 8,23 og fyrir hæfileika 8,83 sem gerir 8,62 í aðaleinkunn. Hinrik Bragason sýndi Telmu en Telma er undan Framherja frá Flagbjarnarholti og Emblu frá Oddgeirshólum.
Í Hafnarfirði er efstur Seðill frá Árbæ en Seðill var hæst dæmdi sex vetra stóðhesturinn í fyrra. Seðill bætti töluvert við sig bæði í sköpulagi og hæfileikum en fyrir sköpulag hlaut hann 8,79 og fyrir hæfileika 8,72. Það gerir 8,75 í aðaleinkunn en það var Árni Björn Pálsson sem sýndi hestinn. Seðill er undan Sjóði frá Kirkjubæ og Veronu frá Árbæ.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH