Þórálfur setur met
Það hafa þó nokkrir gert atlögu að hæsta dóm sögunar í kynbótasýningum sem Spuni frá Vesturkoti setti á LM2011 þegar hann hlaut 8,92 í aðaleinkunn, en nú hefur það met veri slegið. Það var hinn ættstóri hestur Þórálfur frá Prestsbæ undan tveimur heiðurverðlaunahrossum, þeim Álfi frá Selfossi og Þoku frá Hólum.
Hér fyrir neðan er dómur hans fyrir yfirlit sem fram fer á morgun.
Höfuð 7.5 Djúpir kjálkar
Háls/herðar/bógar 8.5 Langur – Mjúkur – Skásettir bógar – Djúpur
Bak og lend 8 Vöðvafyllt bak – Afturdregin lend
Samræmi 9.5 Langvaxið – Fótahátt – Sívalvaxið
Fótagerð 9.5 Sverir liðir – Mikil sinaskil – Öflugar sinar – Prúðir fætur
Réttleiki 9 Framf.: Réttir Afturf.: Réttir
Hófar 9.5 Djúpir – Sléttir – Efnisþykkir
Prúðleiki 9
Sköpulag 8.93
Tölt 8.5 Taktgott – Há fótlyfta – Skrefmikið
Brokk 9 Öruggt – Skrefmikið – Há fótlyfta
Skeið 9.5 Ferðmikið – Takthreint – Öruggt – Mikil fótahreyfing – Skrefmikið
Stökk 9 Ferðmikið – Teygjugott – Takthreint
Vilji og geðslag 9.5 Ásækni – Þjálni
Fegurð í reið 8.5
Fet 9 Taktgott – Skrefmikið
Hæfileikar 8.95
Hægt tölt 8
Hægt stökk 8.5
Aðaleinkunn 8.94
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH