Afreksverðlaun Hrossaræktarsambands Skagfirðinga 2010
Tilnefningar – Á stórhátíð skagfirskra hestamanna n.k. laugardagskvöld (30. okt.)…
í Miðgarði mun HSS veita farandgripi sína. Það eru:
Ófeigsbikarinn er viðurkenning fyrir hrossaræktarbú ársins. Valið byggir bæði á árangri hrossa á kynbótabrautinni og keppnisvellinum. Þau hrossaræktarbú sem til álita koma í þessum flokki eru í stafrófsröð:
Flugumýri II
Hafsteinsstaðir
Hólar í Hjaltadal
Prestsbær
Kraftsbikarinn er veittur þeim knapa sem bestum árangri hefur náð við sýningu kynbótahrossa á árinu. Eftirfarandi knapar eru tilnefndir í stafrófsröð:
Bjarni Jónasson
Gísli Gíslason
Mette Mannseth
Þóarinn Eymundsson
Sörlabikarinn kemur síðan í hlut eigenda að því hrossi sem hæsta einkunn hefur hlotið í kynbótadómi á árinu. Skilyrði er að hrossið sé með skagfirskan uppruna og að eigendur þess eigi lögheimili í Skagafirði.
Nánar má skoða upplýsingar um reglur við útreikninga inn á heimasíðu HSS inn á horse.is.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH