Survive Iceland að hefjast

  • 20. ágúst 2022
  • Fréttir

Survive Iceland eða Þolreið LH hefst þann 25. ágúst og mun standa yfir dagana 25-28. ágúst. Survive Iceland er liðakeppni þar sem hvert lið samanstendur af einum knapa, tveimur aðstoðarmönnum og þremur hestum. Á hverjum degi ríður hver knapi um 50-70 km. á tveimur hestum.

Hægt er að lesa sig til um fyrirkomulag keppninnar hér

Liðin sem keppa að þessu sinni eru sex og eru sem hér segir:

Lið Líflands – Hermann Árnason – Ísland
Lið Íslandshesta – Marjon Pasmooij – Holland
Lið Tamangur/Hestalands – Sami Browneller – USA
Lið Eldhesta – Sigurjón Bjarnason – Ísland
Lið Stálnausts – Karri Bruscotter – USA
Lið H. hestaferða – Emelie Sellberg – Svíþjóð

Hægt verður að fylgjast með gengi knapa á vef hugbúnaðarfyrirtækisins Samsýn: https://surviveiceland.samsyn.is/
Með því að ýta á Menu takkann er hægt að sjá hvar knapi er staddur, hversu langt hann er búinn að ríða og á hvaða hraða hann fer á.
Gott er að hafa í huga að þar sem er ekki símasamband dettur knapi út en kemur inn aftur um leið og símasamband er komið á aftur og skilar þá ritinn inn leiðinni sem knapi og hestur fóru á meðan símasamband datt út.

Eftir hvern dag verða færðar fréttir af stöðu knapa og liða á vefsíðu LH.

Fylgist einnig með á Facebook síðu LH og Instagram LH. 

 

www.lhhestar.is

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link