Skeiðleikar á morgun – Góð veðurspá
Fjórðu og síðustu Skeiðleikar Baldvins og Þorvaldar og Skeiðfélagsins fara fram á morgun, mánudaginn 29.ágúst, og hefjast þeir klukkan 18:00.
Veðurspáin er góð en seinni partinn á morgun spáir meðvindi og lofthita á Selfossi. Skráning á leikanna er opin í dag fram að miðnætt í gegnum Sportfeng.
Styrktaraðili Skeiðleikanna – hestavöruverslunin Baldvin og Þorvaldur- styrkir um verðlaunagripi sumarsins auk þess að stigahæsti knapi ársins hlýtur 100.000 króna úttekt í versluninni. Þá fær stigahæsti knapi ársins einnig til varðveislu í eitt ár farandgripinn Öderinn sem Gunnar og Kristbjörg Eyvindsdóttir gáfu til minningar um Einar Öder Magnússon.
Dagskrá 18:00
- 250 metra skeið
- 150 metra skeið
- 100 metra flugskeið
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH