Hans Þór stigahæstur skeiðknapa – Úrslit skeiðleika 4

  • 29. ágúst 2022
  • Fréttir

Hans Þór Hilmarsson stigahæsti knapi sumarsins ásamt Rögnu Gunnarsdóttir frá Baldvin og Þorvaldi

Fjórðu og síðustu skeiðleikar Baldvins og Þorvaldar og Skeiðfélagsins fóru fram á Brávöllum á Selfossi í dag, mánudaginn 29.ágúst. Veðuraðstæður voru með ágætum og prýðistímar náðust í öllum vegalengdum.

Þetta tímabil markar ákveðin tímamót fyrir Skeiðfélagið þar sem þetta var tíunda keppnistímabilið í röð sem haldið er eftir að Skeiðfélagið var vakið úr dvala sem það hafði legið í frá árinu 2009. Sumir af núverandi Skeiðfélagsmeðlimum hafa verið með frá upphafi og lagt sitt af mörkum við að halda heiðri skeiðkappreiða á lofti.

Hans Þór Hilmarsson er stigahæsti knapi sumarsins og hlaut hann því 100.000 króna gjafaúttekt í verslun Baldvins og Þorvaldar. En þau Guðmundur Árnason og Ragna Gunnarsdóttir í Baldvin og Þorvaldi hafa staðið ríkulega við bakið á Skeiðfélaginu síðastliðin ár og styrkt um öll verðlaun. Auk þess fékk Hans Þór til varðveislu farandbikarinn Öderinn sem gefinn er af Gunnari Arnarssyni og Kristbjörgu Eyvindsdóttur til minningar um Einar Öder Magnússon.

Í 250 metra skeiði var það Konráð Valur Sveinsson sem fór með sigur af hólmi á Kastori frá Garðshorni á Þelamörk á tímanum 22,23 sekúndum. Hann sigraði þá einnig keppni í 150 metra skeiði á Kjarki frá Árbæjarhjáleigu II á tímanum 14,15 sekúndum sem er næstbesti tími ársins í þeirri vegalengd. Í 100 metra skeiði var það hinsvegar Teitur Árnason sem var hlutskarpastur á Drottningu frá Hömrum II á tímanum 7,34 sekúndum sem er næstbesti tíminn í þeirri vegalengd í ár.

Á myndunum sem fylgja má sjá þrjá efstu knapa kvöldsins í hverri keppnisgrein auk Hans Þórs Hilmarssonar heildarsigurvegara. Með þeim á myndunum er Ragna Gunnarsdóttir frá Baldvin og Þorvaldi.

Heildarúrslit skeiðleika kvöldsins má nálgast hér fyrir neðan.

 

Skeið 250m P1
Sæti Knapi Hross Tími
1 Konráð Valur Sveinsson Kastor frá Garðshorni á Þelamörk 22,23
2 Viðar Ingólfsson Ópall frá Miðási 24,07
3 Hans Þór Hilmarsson Jarl frá Þóroddsstöðum 25,07
4 Bjarni Bjarnason Drottning frá Þóroddsstöðum 25,42
5-7 Sigursteinn Sumarliðason Stanley frá Hlemmiskeiði 3 0,00
5-7 Þórarinn Ragnarsson Freyr frá Hraunbæ 0,00
5-7 Sigurbjörn Bárðarson Alviðra frá Kagaðarhóli 0,00

 

Skeið 150m P3
Sæti Knapi Hross Tími
1 Konráð Valur Sveinsson Kjarkur frá Árbæjarhjáleigu II 14,15
2 Þórdís Erla Gunnarsdóttir Óskastjarna frá Fitjum 14,87
3 Sara Sigurbjörnsdóttir Blævar frá Rauðalæk 15,12
4 Karin Emma Emerentia Larsson Eyja frá Miðsitju 15,76
5 Þráinn Ragnarsson Blundur frá Skrúð 16,16
6-9 Teitur Árnason Styrkur frá Hofsstaðaseli 0,00
6-9 Bjarni Bjarnason Glotti frá Þóroddsstöðum 0,00
6-9 Kjartan Ólafsson Hilmar frá Flekkudal 0,00
6-9 Viðar Ingólfsson Sefja frá Kambi 0,00
Flugskeið 100m P2  
Sæti Knapi Hross Tími  
1 Teitur Árnason Drottning frá Hömrum II 7,34  
2 Konráð Valur Sveinsson Kjarkur frá Árbæjarhjáleigu II 7,46  
3 Jón Ársæll Bergmann Rikki frá Stóru-Gröf ytri 7,60  
4 Hans Þór Hilmarsson Jarl frá Þóroddsstöðum 7,62  
5 Viðar Ingólfsson Ópall frá Miðási 7,75  
6 Þórarinn Ragnarsson Freyr frá Hraunbæ 7,77  
7 Þórdís Erla Gunnarsdóttir Óskastjarna frá Fitjum 7,78  
8 Vilborg Smáradóttir Klókur frá Dallandi 7,86  
9 Hrefna María Ómarsdóttir Alda frá Borgarnesi 7,98  
10 Bjarni Bjarnason Grímnir frá Þóroddsstöðum 8,13  
11 Sigurbjörn Bárðarson Alviðra frá Kagaðarhóli 8,21  
12 Karin Emma Emerentia Larsson Eyja frá Miðsitju 8,36  
13 Hafþór Hreiðar Birgisson Pipar frá Ketilsstöðum 9,37  
14 Hrói Bjarnason Freyjuson Hljómur frá Þóroddsstöðum 9,57  
15 Ásdís Freyja Grímsdóttir Hálfdán frá Oddhóli 10,20  

 

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link