Meistaramótið í Bæjaralandi (BIM) hófst í dag

  • 7. september 2022
  • Fréttir

Villi og Sigur Mynd:PetraDecker

Niðurstöður dagsins í dag

Meistaramótið í Bæjaralandi (BIM) hófst í dag en mótið markar endalok keppnistímabildsins í Bæjaralandi (Bavaria). Hægt er að fylgjast með mótinu á Alendis.is en þeir sína beint frá mótinu.

Í dag var keppt í slaktaumatölti T4, tölti T7 og gæðingaskeiði og á morgun fer fram keppni m.a. í fimmgangi F2, slaktaumatölti T2, tölti T1 og T3 og fjórgangi V5 ásamt fyrri umferð í 150m. og 250m. skeiði. Hægt er að sjá dagskrá og ráslista HÉR

Villi Einarsson á Sigri frá Dalbæ og Irene Reber á Mist frá Hrafnkelsstöðum 1 enduðu jöfn efst í gæðingaskeiðinu með 7,29 í einkunn. Þriðji varð Horst Klinghart á Anægju vom Lixhof með 7,25 í einkunn en þau vöktu mikla athygli fyrr í sumar þegar þau fóru 150 m. á 12,82 sek. sem er heimsmetstími en hann fékkst þó ekki staðfestur.

Gæðingaskeið PP1 – 10 efstu

Pos. Rider Horse Score State Persp.
1 Villi Einarsson Sigur frá Dalbæ 7,29
1 Irene Reber Mist frá Hrafnkelsstöðum 1 7,29
3 Horst Klinghart Anægja vom Lixhof 7,25
4 Carola Orend Álfasteinn vom Ruppiner Hof 6,83
4 Thorsten Reisinger Spaði frá Barkarstöðum 6,83
6 Christin Hotze Spes vom Lipperthof 6,58
7 Hinrik Bragason Spóliant vom Lipperthof 6,46
8 Hinrik Bragason Starri frá Herríðarhóli 5,83
9 Uwe Brenner Skörungur – 5,79
10 Anna Francesca Müller Lukkuriddari frá Aldenghoor 5,50

Niðurstöður dagsins er hægt að sjá HÉR

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link