Meistaradeild Líflands í hestaíþróttum Meistaradeildin heldur áfram í vetur

  • 30. september 2022
  • Fréttir
Fréttatilkynning frá stjórn Meistaradeildar Líflands í hestaíþróttum

Stjórn Meistaradeildar Líflands sendi frá sér tilkynningu að undirritaður hefur verið áframhaldandi samstarfssamningur á milli Líflands og Meistaradeildarinnar í hestaíþróttum en samningurinn gildir út keppnistímabilið 2023 og mun deildin því áfram bera heitið „Meistaradeild Líflands í hestaíþróttum“

„Samstarfssamningurinn við Lífland er mikilvægur fyrir Meistaradeildina, það skiptir öllu máli að hafa traustan samstarfsaðila, aðila sem er tilbúin að hlúa vel að hestaíþróttum, með jafn öflugan samstarfsaðila þá er hægt að gera alla umgjörð keppniskvölda sýnilegri, ásamt því halda þeim glæsileika sem deildin hefur verið lofuð fyrir síðustu árin.“

„Meistaradeild Líflands í hestaíþróttum er sýnd í beinni útsendingu út um allan heim, á þremur tungumálum, áhorf hérlendis og erlendis vex með hverju ári og því mikilvægt að vanda alla umgjörð.“ segir jafnframt í tilkynningunni frá stjórninni

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link