Undirbúningur hafinn fyrir Suðurlandsdeildina
„Auglýst verður eftir liðum fljótlega og með umsókn þarf að skila fullskipuðu liði, 3 atvinnumönnum og 3 áhugamönnum. Þau lið sem eiga tryggt sæti í deildinni þurfa að láta vita á næstu vikum ef þau hyggjast ekki taka þátt 2023. Nú liggur fyrir spurningakönnun hjá liðsstjórum liðanna og í framhaldi af henni verða auglýstar dagsetningar fyrir komandi tímabil. Það er útlit fyrir virkilega sterka deild líkt og síðustu sex ár og er gríðarleg stemming fyrir komandi tímabili,“ kemur fram í tilkynningu frá deildinni.
Þau lið sem eiga keppnisrétt eru:
- Árbæjarhjáleiga/Hjarðartún
- Byko
- Efsta-Sel
- Hemla/Hrímnir/Strandarhöfuð
- Húsasmiðjan
- Krappi
- Nonnenmacher
- Slippfélagið
- Smiðjan Brugghús
- Töltrider
- Vesturkot
- Vöðlar/Snilldarverk/Sumarliðabær
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH