Opinn fundur um málefni Landsþings LH 2022

  • 21. október 2022
  • Fréttir
Hestamannafélagið Geysir ætlar að halda opinn fund um þau málefni sem verða tekin fyrir á Landsþingi LH 2022

Landsþing LH fer fram í byrjun nóvembers. „Fundurinn verður haldin í Rangárhöllinni fimmtudagskvöldið 27.okt og hefst kl 19:00. Fundurinn er opinn öllum þeim sem vilja láta málefni hestamennskunnar sig varða. Allir þingfulltrúar á suðurlandi og víðar eru hvattir til að mæta og kynna sér málin. Fá að heyra raddir grasrótarinnar svo hægt sé að taka skýra afstöðu þegar á þingið er komið,“ kemur fram í tilkynningu frá stjórn hestamannafélagsins Geysi.

Öll málefni sem tekin verða fyrir á þinginu munu birtast á heimasíðu Landssambandins núna um helgina. „Endilega kynnið ykkur málið. Kannski er eitthvað málefni sem varðar þig beint. Hvetjum alla til að mæta og segja sína skoðun,“ kemur einnig fram.

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link