Hvað hefur verið gert
Markmið Horses of Iceland er að auka vitund um og styrkja ímynd okkar frábæra íslenska hests, bæði hérlendis og erlendis, sem og að fjölga iðkendum hestaíþróttarinnar. Að auka vitund og styrkja ímynd íslenska hestsins hefur sennilega aldrei verið jafn mikilvægt og nú, hvort sem um er að ræða innan íslensks samfélags eða á alþjóðavettvangi. Mikilvægt er að fræða fólk um hestinn, kosti hans og senda skýr skilaboð um rétta meðhöndlun og notkun á hestinum. Það hefur Horses of Iceland haft að leiðarljósi við gerð kynningarefnis en lögð er áhersla á notkun stafrænnar miðlunar, vef og samfélagsmiðla, sem og almannatengsl.
Verkefnið nýtur stuðnings ríkisins þannig að á móti hverri krónu sem fyrirtæki, samtök og einstaklingar leggja til verkefnisins leggur ríkið krónu á móti. Þannig tvöfaldast hver króna sem greinin leggur í verkefnið. Að auki leggur Íslandsstofa verkefninu til verkefnisstjóra og aðgengi að sérfræðingum á sviði markaðsmála, samfélagsmiðla, hönnunar o.fl.
Það er mikilvægt að hesturinn sé sýnilegur innan íslensks samfélags og að við vekjum á okkur athygli á jákvæðan hátt. Það hefur Horses of Iceland gert í samstarfi við LH m.a. með því að;
- Blása til auglýsingaherferðar til að fjölga félagsmönnum í hestamannafélögum „Ertu félagi í hestamannafélagi?“
- Gera hvatningarverkefni með Samgöngustofu um tillitssemi og umgengni við hesta í umferðinni
- Hvetja hestamenn, hérlendis og erlendis, til þess að halda hátíðlega upp á dag íslenska hestsins, 1.maí. Árið 2021 var „Degi íslenska hestsins“ fagnað á TikTok (#horsesoficeland og #dayoftheicelandichorse) og fékk samtals 48.5milljón áhorf
- Aðstoða LH við samfélagsmiðla – tók m.a. yfir samfélagsmiðla LH fyrir HM 2019
- Styrkja og aðstoða við undirbúning Menntaráðstefnu LH sem haldin var haustið 2021
- Aðstoða við að fjármagna og kynna Þolreið LH
- Styrkja gerð samfélagsmiðla herferðarinnar „100 hestamenn heimsóttir“
- Velvilji til að styrkja gerð myndbands GDLH, „Af hverju Gæðingakeppni“
- Styrkja og koma að undirbúningi fyrir Skrúðreið um miðbæinn í 3 ár (2016-2019) og gera um það myndband
- Styrkja sýninguna „Æskan og Hesturinn“ ásamt því að auglýsa sýninguna bæði á samfélagsmiðlum og með útvarps- og blaðaauglýsingum
- Koma að samstarfi við Landssýninguna, Landsmót hestamanna, Meistaradeild og fleiri stórmót
- Standa fyrir sýning á 17.júní í miðbæ Reykjavíkur
- Kosta myndatökur á fjölda viðburða og hefur LH aðgang að myndabankanum
- Taka þátt í fjölda annarra verkefna sem hafa komið inn á borð HOI
Horses of Iceland stendur einnig fyrir gríðarlega miklu kynningarstarfi erlendis sem hefur gengið mjög vel;
- Meira en 50.000.000 birtingar á samfélagsmiðlum og er virði þeirra talið um 40 milljónir
- Fjöldi fylgjenda á samfélagsmiðlum er rúmlega 100.000
- Greinar og þættir um íslenska hestinn hafa farið í birtingu þar sem fjöldi lesenda er um 290 milljónir manna
- Myndbönd um íslenska hestinn hafa fengið meira en þrjár milljónir spilana
- Send eru reglulega út fréttabréf með fróðleik og upplýsingum um íslenska hestinn á póstlista sem telur 17 þúsund manns
- 2021 var sett met í útflutningi hrossa í 9 ár
Þessi verkefni hefur Horses of Iceland framkvæmt og getur áfram gert ef vilji er til. Fulltrúar verkefnisins hafa ýmsar hugmyndir að kynningarstarfi til að auka vitund um hestaíþróttina hérlendis í samstarfi við LH, en vonast einnig til þess að fá hugmyndir frá félagsmönnum LH og heyra hvað þeim finnst vera mikilvægt að sé gert og með hvaða hætti.
Verkefnið Horses of Iceland er samstarfsverkefni okkar allra sem er umhugað um íslenska hestinn og okkar helsta markmið er að vekja jákvæða athygli á íslenska hestinum.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH