Reiðkennari ársins 2022
Landssamband hestamannafélaga sendi frá sér tilkynningu í dag þar sem óskað er eftir tilnefningum fyrir reiðkennara ársins 2022.
Skilyrðin fyrir tilnefningunni eru:
- Verður að vera skráður í hestamannafélag á Íslandi.
- Verður að vera innan Feif Matrixunnar level 1, 2, 3 eða 4 sjá https://www.feif.org/education-dept/trainers/
- Verður að vera starfandi reiðkennari.
Dæmi um reiðkennara sem geta hlotið tilnefningar:
- Reiðkennari sem hefur sýnt fram á miklar framfarir hjá nemendum á hvaða stigi eða sviði sem er.
- Reiðkennari sem er með frumkvöðlahugsun, gert eitthvað nýtt eða öðruvísi en flestir aðrir, t.d. nýstárlega nálgun í almennri kennslu eða rafkennslu.
- Reiðkennari sem gerir frábæra hluti með börnum, fötluðum eða keppnisknöpum.
- Reiðkennari sem stuðlar sérstaklega að nýliðun í hestamennsku.
- Reiðkennari sem stuðlar sérstaklega að velferð hesta.
„Tilnefningunni skal fylgja ástæða fyrir því að þér finnst viðkomandi eiga skilið titilinn “Reiðkennari ársins”. Ekki má tilnefna nátengda aðila þ.e.a.s. fjölskyldumeðlimi, maka, börn o.s.frv,“ segir í tilynningunni.
Það er menntanefnd LH sem velur úr tilnefningum og setur út netkosningu á vefsíðu LH. Sá reiðkennari sem fær flest atkvæði í netkosningu innanlands er svo fulltrúi Íslands í alþjóðlegri netkosningu Menntanefndar FEIF sem setur atkvæðagreiðslu í gang í janúar. Sá eða sú sem vinnur atkvæðagreiðslu FEIF hlýtur titilinn Reiðkennari ársins 2022. Tilkynnt verður hver það verður í febrúar 2022.
Tilnefningar þurfa að berast í síðasta lagi 18. nóvember. Vinsamlegast sendið tilnefningarnar á [email protected]
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson