Jóhann Kristinn Íþróttamaður og Valdís Björk Íþróttakona Spretts 2022
Á þessu ári voru þrjú ungmenni í U21 og fóru þau öll fyrir Íslands hönd á Norðurlandamót í hestaíþróttum sem haldið var á Álandseyjum í ágúst. Hekla Rán Hannesdóttir, Hulda María Sveinbjörnsdóttir og Kristófer Darri Sigurðsson komust þau öll í úrstlit á hestunum sem þau kepptu á og voru sér og sínum til sóma. Þessi þrjú ungmenni hlutu viðurkenningu fyrir glæsilega framistöðu á Norðulandamóti í hestaíþróttum 2022.
Eftirfarandi Sprettarar hlutu verðlaun fyrir bestan keppnisárangur í sínum flokki, stikklað er á stóru hvar þau kepptu fyrir hönd Spretts.
Besti keppnisárangur í ungmennaflokki, piltar.
Kristófer Darri Sigurðsson.
Kristófer stóð sig frábærlega á keppnisbrautinni á líðandi ári, varð meðal annars tvöfaldur Íslandsmeistari, annarsvegar í samanlögðum fimmgangsgreinum í ungmennaflokki á hestinum Ás frá Kirkjubæ, einnig varð hann Íslansmeistari í 100m skeiði í ungmennaflokki á hestinum Gnúp frá Dallandi. Kristófer og Ás sigruðu fimmgang F1 á Reykjavíkurmeistarmóti Fáks, 2.sæti á Opna íþróttamóti Spretts og 1.sæti WR íþróttamóti Sleipnis. Til hamingju Kristófer!!

Kristófer Darri Sigurðsson ásamt Guðna Halldórssyni og Sverri Einarssyni
Besti keppnisárangur í Ungmennaflokki, stúlkur.
Hulda María Sveinbjörnsdóttir.
Hulda María stóð sig frábæralega á keppnisbrautinni á líðandi ári. Hulda keppti á fjölda móta sigraði meðal annars fjórgang ungmenna V1 á Opna íþróttamóti Spretts á Muninn frá Bergi og sigraði fjórgang V1 á Hafnafjarðameistaramóti Sörla á Aðgát frá Víðivöllum-fremri, á Landsmóti Hestamanna komst hún í B-úrslit með hestinn Muninn frá Bergi þar sem þau höfnuðu í 14. sæti í Ungmennaflokki á Íslandsmóti fullorðinna og ungmenna varð hún í 5.sæti í fimmgangi F1 á hestinum Gusti frá Efri-Þverá . Til hamingju Hulda!!

Hulda María Sveinbjörnsdóttir ásamt Guðna Halldórssyni og Sverri Einarssyni
Íþróttakona Spretts, áhugamannaflokkar.
Auður Stefánsdóttir.
Auður tók þátt í fjölda móta á árinu og stóð sig með sóma. Sigraði slaktaumatölt T4 á Áhugamannamóti Íslands og Hafnafjarðarmeistarmóti Sörla á Gusti frá Miðhúsum, varð í 2.sæti í slaktaumatölti T4 á Opna íþróttamóti Spretts og WR íþróttamóti Sleipnis á Gusti frá Miðhúsum, varð í 3.sæti í tölti T3 á Náttrúnu Ýr frá Herríðarhóli á Hafnafjarðameistarmóti Sörla. Til hamingju Auður!!

Auður Stefánsdóttir ásamt Guðna Halldórssyni og Sverri Einarssyni
Íþróttamaður Spretts, áhugamannaflokkar.
Hermann Arason.
Hermann keppti á fjölda móta. Sigraði meðal annars slaktaumatölt T4 á Opna íþróttamóti Spretts og WR íþróttamóti Sleipnis á Glettu frá Hólateigi, á Reykjavíkurmeistarmóti Fáks og á WR Suðurlandsmóti Geysis sigraði hann slaktaumatölt T4 á Gusti frá Miðhúsum einnig sigraði hann tölt T3 á Reykjavíkurmeistaramóti Fáks á Gullhamri frá Dallandi, á WR Suðurlandsmóti Geysis og Metamóti Spretts sigraði hann tölt T3 á Náttrúnu Ýr frá Herríðarhóli. Til hamingju Hermann!!

Hermann Arason ásamt Guðna Halldórssyni og Sverri Einarssyni
Íþróttakona Spretts
Valdís Björk Guðmundsdóttir.
Valdís keppti á fremur ungum hrossum sem eru að stíga sín fyrstu skref í keppni, á Opna íþróttamóti Spretts varð hún efst í tölti og önnur í fjórgangi inn í úrslit á hryssunni Lind frá Svignaskarði á Reykjavíkurmeistarmóti Fáks varð hún í 4.sæti í fimmgangi F2, meistarflokki á Bósa frá Brekku.
Íþróttamaður Spretts
Jóhann Kr Ragnarsson.
Jóhann stóð sig frábærlega í skeiðgreinum á árinu á hryssunni Þórvöru frá Lækjarbotnum á árinu, á WR Suðurlandsmóti Geysis sigraði hann gæðingaskeið, varð í 2. sæti á Landsmóti hestamanna í gæðingaskeiði, á WR Íþróttamóti Geysis varð hann í 2.sæti í slaktaumatölti T2 á hestinum Kvarða frá Pulu og 3.sæti í fimmgangi F2 meistarflokki á sama móti á Væntingu frá Vöðlum. Til hamingju Jóhann!!

Jóhann Kr Ragnarsson ásamt Guðna Halldórssyni og Sverri Einarssyni
Kolskeggur frá Kjarnholtum, sigurvegari A-flokks gæðinga á Landsmóti 2022, eigandi hans og ræktandi Magnús Einarsson var heiðraður á Árshátíð Spretts fyrir frábæran árangur gæðingsins Kolskeggs.

Magnús Einarsson ásamt Guðna Halldórssyni og Sverri Einarssyni
Stjórn óskar öllum innilega til hamingju með frábæran árangur 2022.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH