Knapar ársins og sjálfboðaliði ársins hjá Neista
Glæsilegi uppskeruhátíð búgreinafélaganna og hestamannafélagsins Neista var haldin 19. nóvember. Þar voru knapar ársins og sjálfboðaliði ársins verðlaunaðir.
Knapi ársins 2022 í yngri flokkum hjá Hestamannafélaginu Neista er Una Ósk Guðmundsdóttir.
![]() |
Una átti frábært ár, tók þátt í Gæðingakvöldmóti Skagfirðings, Vetrarmótaröð Skagfirðins, WR Hólamóti UMSS og Skagfirðings, Félagsmóti og úrtöku Neista og Snarfara og Landsmóti hestamanna.
Una fór á Landsmót hestamanna fyrir hönd félagsins með Snældu frá Húsavík og stóðu þær sig frábærlega vel. Glæsilega gert, innilega til hamingju!
Knapi ársins 2022 í fullorðinsflokki hjá Hestamannafélaginu Neista er Guðrún Rut Hreiðarsdóttir.
![]() |
Guðrún Rut gerði það gott á árinu, tók þátt í vetrarmótaröð Skagfirðings og félagsmóti og úrtöku Neista og Snarfara í vor. Á vetrarmótaröð Skagfirðins fór hún með Kristal og Skjá. Á félagsmóti og úrtöku Neista og Snarfara mætti Guðrún Rut með Kristal, Skjá, Rebekku og Sál. Öll þessi hross eru frá Skagaströnd. Glæsileg pör þar á fer og stóðu þau sig öll með prýði á þessum mótum. Þess má líka geta að Guðrún Rut hefur kennt hjá okkur á námskeiðum í nokkur ár. Frábær kennari. Innilega til hamingju!
Sjálfboðaliði ársins hjá hestamannafélaginu Neista er Kristján Þorbjörnsson.
Arnar Freyr tók á móti verðlaununum.
![]() |
Kristján er búinn að vera í reiðveganefnd Neista til fjölda ára, hann er einnig í samgöngunefnd Landsambands hestamanna sem kemur saman einu sinni á ári og fer yfir reiðvegamál hestamannafélaga. Þeir eru ófáir reiðvegirnir sem Kristján er búinn að leggja hér í héraði, með hjálp annarra auðvitað, en það liggur mikil vinna að koma þessum vegum í framkvæmd. Hann kom einnig upp hrossaáningagerði hjá Sveinsstöðum 2019, sótti um styrk í framkvæmdasjóð ferðamannastaða til að setja upp áningagerði, sem hann fékk. Í sumar fór mikil vinna í að fá reiðveg meðfram nýja Skagsstrandarveginum samþykktan. Hann á mikið hrós skilið fyrir að leggja alla þessa vinnu fram til að við hin getum riðið hér um héruð. Spurning hvort hann vilji ekki taka okkur í hópreið um þessa vegi sem hann hefur haft í hönd með að koma í framkvæmd. Innilega til hamingju og bestu þakkir fyrir!
![]() |




Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH