LOKSINS SKÖTUVEISLA!

  • 8. desember 2022
  • Tilkynning
Rangárhöll og Rangárbakkar standa fyrir Skötuveislu í Íþróttahúsinu á Hellu þann 9. desember n.k. líkt og gert hefur verið allt frá árinu 2014.
Hægt er að panta miða í s: 8662632 og 8945003 ásamt því að miðar verða seldir á staðnum.
Happadrætti Skötuveislunnar er eitt það glæsilegasta happadrætti sem sögur fara af! 20 folatollar, hótelgistingar, fjölbreytt gjafabréf, vinningar frá Hermosa.is og margt, margt fleira!
Folatollar í happadrættinu eru t.d. Geisli og Seðill frá Árbæ, Blesi frá Heysholti, Glaður frá Hemlu, Kór frá Skálakoti, Gandi frá Rauðalæk, Sóli frá Þúfum og fleiri og fleiri!
Matseðill: Kæst skata, saltfiskur, fiskréttur, hamsatólg, kartöflur og rófur.
Eftirréttur: Ábrystir með kanil.
Sunnlensk skemmtidagskrá af bestu gerð! BSRB og Leyniskytturnar 🦹‍♂️🥷
Ræðumaður kvöldsins er Fannar Jónasson.
Miðaverð: 6.000 kr
Hvetjum fólk til þess að tryggja sér miða í tíma 👍

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link