Arnari Mána sárvantar reiðhanska

  • 21. desember 2022
  • Fréttir
Jólamoli Eiðfaxa

Arnar Máni Sigurjónsson er úr hestamannafélaginu Fáki og er knapi í U21 landsliðshópi Íslands. Hann býr í Reykjavík þar sem hann stundar nám ásamt því að sinna hestamennskunni af krafti.

Arnar Máni er viðmælandi í Jólamola dagsins

Jólamolar Eiðfaxa munu birtast reglulega fram að jólum en þar fáum við að kynnast alls konar hestamönnum í öðru ljósi og komast að því hvað það er sem kemur þeim í jólaskap.

Hvað ert þú að brasa þessa dagana ?
Ég er að njóta jólafrísins með því að ríða út í Víðidalnum

Með hvaða hrossa stefnirðu á Heimsmeistaramót og í hvaða grein?
Ég stefni meðal annars með hann Storm frá Kambi í slaktaumatölt.

Hvort myndirðu skilgreina þig sem Elf eða The Grinch?
Ég er þarna einhverstaðar á milli

Hver er þín uppáhalds jólaminning?
Það er alltaf geggjuð stemmning í Víðidalnum þegar allir eru komnir í jólafrí og reiðhöllin fyllist af fólki í góðu skapi

Hver er eftirminnilegasta jólagjöfin sem þú hefur fengið?
Mynd eftir Helmu af honum Geisla mínum sem mamma og pabbi gáfu mér fyrir tveimur árum

Hver er uppáhalds jólahefðin þín?
Að fara í Miklholt að sækja jólatré og borða helling af smákökum

Hvert er þitt uppáhalds jólalag?
Ég sá mömmu kyssa jólasvein er klassi

Hver er þín uppáhalds jólamynd?
Home alone

Hvað borðar þú á aðfangadag?
Mamma hendir í humar í forrétt og rjúpu í aðalrétt

Hvað langar þig í jólagjöf í ár?
Mig alveg sárvantar reiðhanska eins og svo oft áður

Hvað kemur þér í jólaskap?
Smákökur

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link