Reiðkennarar óskast á Hólaskóla

  • 23. desember 2022
  • Tilkynning
Auglýst er til umsóknar tvær stöður reiðkennara við Hestafræðideild Háskólans á Hólum.

Á vef stjórnarráðsins er auglýst til umsóknar tvær stöður reiðkennara við Hestafræðideild Háskólans á Hólum. Önnur staðan er tímabundin en hin ótímabundin. Hér fyrir neðan er auglýsingin:

„Hestafræðideild háskólans veitir fagmenntun á sviði hestafræða, tamninga, reiðmennsku og reiðkennslu og vinnur að þróun og nýsköpun fræðasviðsins í rannsóknastarfi.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Verkleg og bókleg reiðkennsla og tengd verkefni.
  • Þjálfun á hestakosti háskólans.
  • Önnur verkefni í samráði við deildarstjóra

Hæfniskröfur

  • Reiðkennaramenntun og reynsla af reiðkennslu.
  • Góð hæfni í mannlegum samskiptum og samvinnu.
  • Góð íslensku og enskukunnátta í ræðu og riti.
  • Frekari upplýsingar um starfið

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sameyki hafa gert.

Á Hólum er fjölskylduvænt samfélag, falleg náttúra og sögurík umgjörð. Á staðnum er leik- og grunnskóli. Háskólinn aðstoðar við að útvega húsnæði í Skagafirði ef þess er þörf.

Um meðferð umsókna, mat á hæfi umsækjenda og ráðningu í starfið er farið eftir ákvæðum laga um opinbera háskóla nr. 85/2008. Launakjör eru skv. kjarasamningi fjármálaráðherra og viðkomandi stéttarfélags. Um starfskjör, réttindi og skyldur gilda að öðru leyti lög um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins nr. 70/1996.

Umsóknarfrestur er til og með 2. janúar 2023 og er æskilegt að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Nánari upplýsingar um starfið veitir Íris Dögg Björnsdóttir mannauðsráðgjafi, [email protected].

Sótt er um starfið á starfatorg.is.

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 02.01.2023

Nánari upplýsingar veitir

Íris Dögg Björnsdóttir, Mannauðsráðgjafi – [email protected]

Smelltu hér til að sækja um starfið

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link