Vetrarfögnuður Sörla 30. desember
Vetrarfögnuður Sörla verður föstudaginn 30. desember og er boðið upp á ístölt á beinni braut.
Nú þegar er búið að setja 20.000 lítra á beinu brautina í Sörla og verður bætt á það næstu daga. Mótið er opið öllum og hvetja Sörlamenn alla til að taka sér bíltúr í Hafnarfjörðinn.
„Nú þegar veðurspáin er komin fyrir föstudagskvöldið 30. desember sjáum við að hægt verður að halda Vetrarfögnuð Sörla. Við ætlum að fagna fimbulkulda og bjóða upp á ístölt á beinu brautinni kl. 19:00. Tekið verður á móti skráningum í dómpalli á föstudeginum á milli kl. 16:30 og 17:30. Verð fyrir skráningu er kr. 2.000 og það verður posi á staðnum,“ segir í tilkynningu frá félaginu.
Keppt verður í eftirfarandi flokkum:
21 árs og yngri.
Konur 22 ára og eldri.
Karlar 22 ára og eldri.
„Eftir ístöltið gleðjumst við svo saman á kvöldskemmtun á Sörlastöðum. Skemmtinefndin verður á staðnum með veitingar á hóflegum kjörum. Hlökkum til að sjá ykkur þar sem að við fögnum saman vetri konungi.“
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Skráning opin á Metamót Spretts