Sveitarfélögin styrkja starf Jökuls

  • 30. desember 2022
  • Fréttir

Forsvarsmenn sveitarfélaganna og forsvarsmenn Hestamannafélagsins Jökuls.

Fjárhagslegur stuðningur út árið 2026.

Sveitarfélögin fjögur í uppsveitum Árnessýslu; Bláskógabyggð, Grímsnes- og Grafningshreppur, Hrunamannahreppur og Skeiða- og Gnúpverjahreppur undirrituðu í dag samstarfssamning við Hestamannafélagið Jökul en þetta kemur fram á vef Sunnlenska.is

Tilgangur samningsins er meðal annars að efla samstarf sveitarfélaganna og hestamannafélagsins, tryggja öflugt íþrótta- og æskulýðsstarf fyrir börn og unglinga og efla starf Jökuls. Áhersla er á fagmennsku og þekkingu í starfi félagsins og forvarnir með fræðslu til iðkenda og starfsmanna um skaðsemi vímuefna, einelti, kynbundið áreiti, kynferðislegt áreiti eða ofbeldi.

Í samningnum, sem gildir út árið 2026, er kveðið á um árlegan fjárhagslegan stuðning sveitarfélaganna við félagið. Á myndinni, sem var tekin í reiðhöllinni á Flúðum, eru forsvarsmenn sveitarfélaganna og forsvarsmenn Hestamannafélagsins Jökuls.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link