Upplýsingar til ræktenda íslenska hestsins

  • 31. janúar 2023
  • Fréttir
Lesendabréf

Um næstu helgi verður haldin ráðstefna á vegum FEIF. Á þeirri ráðstefnu er meðal annars fjallað um ræktunarmál íslenska hestsins. Nýjar reglur settar fram til samþykktar. Fæstir hafa frétt af þessum reglum enda ekki auðvelt að nálgast þær og þeir aðilar sem standa að þessum breytingum hafa ekki haft sig í frammi við að kynna viðkomandi breytingar, þó svo að þær geti haft veruleg áhrif.

Þeir sem vilja kynna sér þetta geta farið inná heima síðu FEIF : feif.org smelt á flipann FEIF (ekki breeding það er ekki kynnt þar) þá kemur valmöguleiki documents og veljið conference og þar undir FEIF Conference 2023. Um ræktunarmálin er fjallað á bls 33 og þar eftir. Hér koma til dæmis tvær nýjar reglur sem ég held að komi frá ræktunarráði FEIF, en fróðlegt væri að fá staðfestingu á hvaðan þær koma.

Bls 37

New: The height of the fence should not exceed 30 cm and there should be at least 2 meters free from obstacles on both sides of the track.
Fyrri reglan varðar keppnisvelli, þar kemur fram að girðing keppnisvallar ætti ekki vera hærri en 30cm og tveggja metra frítt svæði beggja megin brautar.
Þegar horft er til þeirrar aðstöðu sem notuð er í dag má sjá að breyting í þessa veru kostar umtalsverða fjármuni og uppstokkun. Hvaðan kemur fjármagn til svona breytinga og hver á að sjá um þær?

Bls 38

B5.1 Eligibility Reason: It is not horse friendly to show the same horse at more than one breeding show within the same week. Breeding shows are open to horses registered in WorldFengur that fulfil other requirements stated in the rules and regulations of FEIF. It is only allowed to show the same horse at one breeding show within the same week

Seinni reglan segir til um að hross megi ekki taka þátt í fleiri en einni kynbótasýningu í hverri viku, það sé ekki hestvænt ?

Hvert er verið að stefna ? Í íþróttakeppni má 5 vetra hross taka þátt í tveimur greinum sama daginn og 6 vetra hross og eldri 3 greinum sama daginn. Á Landsmótum og stærri viðburðum koma sömu hrossin mörgum sinnum fram í sömu vikunni. Þarf ekki að vera jafnræði hvað þetta varðar, þurfa ekki sömu lög og reglur að gilda hvar sem að hestamennskunni kemur. Ef þetta er stefnan dugir þá mánuður til þess að halda Landsmót? Við þurfum líka að gera okkur grein fyrir því að sýning getur mislukkast og það getur staðið þannig á að ekki sé mögulegt að koma viðkomandi hrossi á sýningu viku seinna (minni líkur en meiri), það getur þurft að bíða í ár, hvað kostar það og hver á að borga. Þú vilt sýna hrossið þegar þjálfunarstig þess er í toppi og aðgengi að sýningum er ekki með þeim hætti að hægt sé að koma hrossi í sýningu auðveldlega, hvað þá erlendis. Það getur kallað á ferðalag milli landa, auk þess sem ekki er opin skráning á sýningar með stuttum fyrirvara.

Er þetta raunveruleg ástæða tillögunnar? Eða er það hið mikla misræmi sem oft á tíðum kemur í ljós milli dómnefnda þar sem hross virðast umskapast í sömu vikunni hvort heldur hvað varðar sköpulag eða hæfileika. Hvernig má það vera að þetta sé ekki kynnt fyrir þeim sem málið varðar ræktendum, eigendum og sýnendum hrossanna?

Höfundur: Kristbjörg Eyvindsdóttir

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link