Boðið upp á forskoðun kynbótahrossa í Samskipahöllinni

  • 2. febrúar 2023
  • Tilkynning
Viðburðurinn er opinn öllum en hrossaræktardeild Spretts er að halda hann.

Þorvaldur Kristjánsson kynbótaráðunautur mun sjá um forskoðun kynbótahrossa í Samskipahöllinni 11.02. 2023 kl 13.30-17.00  en hann heldur einnig fyrirlestur kl 12.00-13.00 um sögu Landsmóta á sama stað.

Hrossaræktardeild Spretts er að halda viðburðinn en þátttaka er opin öllum en skráningargjald fyrir hross í forskoðun er 2.000 kr. og fer skráning fram hjá : [email protected]
Gefa þarf upp IS nr. við skráninguna.

Dagskrá: 11.02.2023
kl 12:00-13:00 : Fyrirlestur – saga landsmóta o.fl. Þorvaldur Kristjánsson Samskipahöll 2.hæð.
kl 13:30-17.00 : Forskoðun kynbótahrossa Þorvaldur Kristjánsson Samskipahöll

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link