Heimsmeistaramót Íslenska hestsins í Hollandi 2023

  • 9. febrúar 2023
  • Tilkynning
Tækifæri í sölu og kynningu á íslenskum vörum eða þjónustu

Íslandsstofa undirbýr þátttöku íslenskra fyrirtækja á sölu- og sýningarsvæði Heimsmeistaramóts Íslenska hestsins sem fram fer í Oirschot í Hollandi dagana 8.- 13. ágúst 2023. Íslenskum fyrirtækjum gefst þar tækifæri til að kynna sig og selja vörur og þjónustu meðan á mótinu stendur.

Heimsmeistaramótið er einn stærsti vettvangur íslenska hestsins um heim allan. Nítján þjóðir hafa keppnisrétt á mótinu og má búast við miklum fjölda gesta þá sjö daga sem það stendur yfir. Þetta er í þriðja sinn sem Heimsmeistaramótið er haldið í Oirschot.

Líkt og þekkist á landsmóti hér heima er gert ráð fyrir stóru sölu- og sýningarsvæði þar sem fyrirtæki, tengd hestamennsku eða úr öðrum greinum, geta kynnt og boðið vörur sína og þjónustu til sölu.

Þeir sem hafa áhuga á að vera með bás á svæðinu eru beðnir að hafa samband við Berglindi Margo Þorvaldsdóttur, verkefnastjóra Horses of Iceland, [email protected] eða í síma 511 4000 fyrir 6.mars nk.

Nánari upplýsingar er að finna á vefsíðu Heimsmeistaramótsins; https://www.wc2023.nl/

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link