Reiðnámskeiðið Fimi og flæði

  • 10. febrúar 2023
  • Tilkynning
Reiðnámskeið með nemendum á 2. ári hestafræðideildar

Þann 1, 2, 7. og 8. mars verða 2. árs nemendur við hestafræðideildina á Hólum með reiðnámskeið. Kennsla fer fram á Hólum og notast verður við hesta skólans.

Notast verður við Knapamerki 3 við kennsluna og æskilegt er að reynsla þátttakenda sé í samræmi við það til að þeir fái sem mest út úr námskeiðinu.

Námskeiðið er þátttakendum að kostnaðarlausu og fer kennsla fram á skólahestum Hólaskóla og er þetta því frábært tækifæri til að fá kennslu á mikið tömdum hestum.

Það eru 16 pláss laus á námskeiðið. Nemendum verður skipt í fjóra hópa. Lágmarksaldur er 14 ára. Fyrstur kemur, fyrstur fær.

Kennt verður verklegt í 50 mín. á hvern hóp milli kl. 17:00 og 20:50

Verklegir tímar eru 1. 2. 7. og 8. mars og auk þess eru 40 mín. bóklegir tímar 2. og 7. mars

Æskilegt er að nemendur mæti með eigin búnað (hnakk, beilsi, múl og hjálm).

Skráning hjá Eygló Örnu: [email protected] eða Önnu Margréti í s. 866 5832.

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link