Hvetur hrossabændur til þátttöku

  • 13. febrúar 2023
  • Fréttir
Skráningu að ljúka fyrir búgreinaþing Bændasamtaka Íslands

Búgreinaþing Bændasamtaka Íslands verður haldið á Hótel Natura í Reykjavík dagana 22. og 23. febrúar næstkomandi. Sveinn Steinarsson hefur verið formaður deildar hrossabænda innan Bændasamtakanna (áður Félag hrossabænda) í áratug og er að hætta sem formaður.

“Þetta hefur verið viðburðaríkur tími en nú er kominn tíma til að ég víki úr formannsstólnum. Ég hvet alla þá sem vilja láta sig málefni íslenskra hrossa varða að gefa kost á sér,” segir Sveinn í samtali við Eiðfaxa.

Skráningu lýkur á miðvikudag

Fullgildir félagsmenn deildar hrossabænda (skuldlausir félagar um síðustu áramót) hafa rétt til fundarsetu og kjörgengis á þinginu en fjöldi fullgildra félaga er 450 talsins sem gerir deild hrossabænda að þriðju fjölmennustu deildinni innan Bændasamtakanna. Síðasti skráningardagur á búgreinaþingið er til hádegis, miðvikudaginn 15. febrúar næstkomandi, og því um að gera að hafa hraðar hendur. Hægt er að skrá sig á þingið HÉR.

“Stærsta áskorun nýrrar stjórnar er að efla félagsstarfið og ná betur til félaganna. Félagskerfið hefur gengið í gegnum meiri breytingar en mönnum hafði órað fyrir þegar ákveðið var að leggja af búnaðargjaldið. Það er því mikilvægt að fólk sem hefur hagsmuni að það taki þátt í félagsstarfinu. Mér finnst vanta þessa stóru aðila, þá sem eru í umfangsmiklum hrossabúskap og hafa mikla hagsmuni, inn í samtökin. Styrkur hverrar búgreinardeildar í BÍ byggist á félagafjölda og þá félagsgjöldum,” bætir hann við. Tekin var ákvörðun í fyrra að til þess að hrossaræktarbú geti verið tilnefnt sem Ræktunarbú ársins þarf það að vera félagi en sú ákvörðun er eflaust hvatning fyrir marga til að skrá sig í samtökin.

Aðkoma hrossabænda að búvörusamningum

Drög að dagskrá deildar hrossabænda á Búgreinaþinginu má sjá hér fyrir neðan en eitt af málefnunum eru Búvörusamningarnir en samið verður um nýja árið 2026.

“Aðkoma okkar að búvörusamningum er eitt af okkar stærstu málum á þinginu. Nú þurfum við að fara að velja þær áherslur sem við viljum berjast fyrir í því samhengi. Ræða það á Búgreinaþinginu og vonandi verða áframhaldandi umræður eftir það. Við þurfum að vekja athygli á því að búgreinin þarf beint fjármagn til að öðlast meiri styrk,” segir Sveinn.

Eins og áður kom fram er Sveinn að hætta sem formaður og verður nýr formaður kosinn á Búgreinaþinginu. Hefur verið venja að formaður búgreinardeildarinnar sé jafnframt formaður Fagráðs í hrossrækt. Umræður hafa verið um að hætta að skipa í Fagráð og kjósa frekar um fulltrúa en því hefur ekki verið breytt.

“Bændasamtökin fóru í að samræma umhverfi fagráðanna heilt yfir búgreinarnar. Á búgreinaþinginu munu samtökin kynna niðurstöður vinnunnar, hvernig skipað verður í Fagráð og hverjar vinnureglurnar verða,” segir Sveinn

Að lokum vill Sveinn hvetja hestamenn til að skrá sig á búgreinaþingið og minnir á skráningarfrest sem er til hádegis á miðvikudag, 15. febrúar

Drög að dagskrá:

Kl. 12:30. – Fundarsetning, kosning starfsmanna fundarins (fundarstjóri, ritari, o.s.frv.)

  1. Skýrsla stjórnar búgreinadeildar. Formaður deildar fer yfir liðið ár.
  2. Kynning á stöðu í sumarexems rannsóknum, fulltrúar frá Keldum með erindi.
  3. Kynning á stöðu Horses of Iceland, Berglind Margo verkefnastjóri.
  4. Ræktunarleiðtoginn staða og áform.
  5. Afgreiðsla innsendra tillagna/mála.
  6. Aðkoma kynbótahrossa að Landsmótum, stjórn leggur til að skipaður verði starfshópur.
  7. Forsendur fyrr tilnefningum til ræktunarbús ársins.
  8. Fagráð BÍ.
  9. Afgreiðsla einstakra mála/tillagna sem deild vill leggja fyrir stjórn BÍ eða Búnaðarþing.
  10. Endurskoðun/endurnýjun búvörusamninga. Hrossabændur óska eftir beinni aðild að búvörusamningi við endurskoðun samninga. Lagt til að þingið álykti.
  11. Kosning formanns (núverandi formaður mun ekki gefa kost á sér áfram ) og varafulltrúa í stjórn deildar
  12. Kosning búnaðarþingsfulltrúa
  13. Önnur mál.

Kl. 17:00 – Fundi slitið

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link