Folaldasýning Hrossaræktarfélags Flóahrepps
Folaldasýning Hrossaræktarfélags Flóahrepps, verður haldin sunnudaginn 5. mars 2023 í Sleipnishöllinni að Brávöllum Selfossi og hefst hún kl. 13:30. Þátttökugjald er 2.500 kr. fyrir hvert folald og greiðist með reiðufé til gjaldkera. Skráningafrestur rennur út kl. 22:00 föstudaginn 3. mars. Koma verður fram nafn á folaldi, litur, móðir, faðir, ræktandi og eigandi. Skráning er hjá Ágústi Inga [email protected] sími 899-5494, Atla Geir [email protected] sími 898-2256 og á netfang félagsins [email protected]. Áhorfendur velja með kosningu glæsilegasta folaldið. Veitt verða verðlaun fyrir þrjú efstu sætin, merfolöld og hestfolöld. Þeir sem verða með folöld eru beðnir um að mæta eigi síðar en kl. 13:00.
Heimasíðan er hrossaraektarfelagfloa.wordpress.com og Hrossaræktarfélag Flóahrepps á facebook. Facebook síðan er aðgengileg án aðgangs að facebook.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Skráning opin á Metamót Spretts