Meistaradeild KS í hestaíþróttum Liðakynning KS deildarinnar

  • 19. febrúar 2023
  • Tilkynning
Síðasta liðið sem deildin kynnir til leiks er lið Þúfna

Síðasta liðið sem kynnt er til leiks í Meistaradeild KS 2023 er lið Þúfna. KS deildin hefst 22. febrúar á keppni í gæðingafimi en hægt er að sjá dagskrá HÉR.

Mette Mannseth er liðsstjóri liðsins. Hún er yfirreiðkennari við Háskólann á Hólum og sigurvegari deildarinnar á síðustu þrjú ár. Með henni er Gísli Gíslason hrossaræktandi og þjálfari á Þúfum, Lea Busch útskrifaður reiðkennari frá Háskólanum á Hólum, Barbara Wenzl þjálfari í Bæ á Höfðaströnd og nýr inn í þetta lið kemur Daníel Gunnarsson þjálfari í Miðsitju.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link