Æska Suðurlands 2023

  • 25. febrúar 2023
  • Tilkynning Fréttir
Mótaröðin Æska Suðurlands mun fara fram á Flúðum, Selfossi og Hellu.

Mótaröðin Æska Suðurlands sem er samstarfsverkefni hestamannafélaganna Ljúfs, Háfeta, Sleipnis, Jökuls og Geysis mun fara fram í vetur á þremur stöðum; Flúðum, Selfossi og Rangárhöllinni Hellu á eftirfarandi dagsetningum:

Sunnudagur 5.mars á Flúðum og þar er keppt í:

  • Barnaflokkur – þrígangur og smali
  • Unglingaflokkur – fjórgangur V2 og smali

Sunnudagur 19.mars á Selfossi og þar er keppt í:

  • Barnaflokkur – tölt T7 og fimi
  • Unglingaflokkur – tölt T3 og fimi

Laugardagur 1.apríl í Rangárhöllinni Hellu og þar er keppt í:

  • Barnaflokkur – fjórgangur V2 og hindrunarstökk
  • Unglingaflokkur – fimmgangur F2 og hindrunarstökk

Upplýsingar um smalabraut, hindrunarstökksbraut og fimi má finna á fésbókarsíðu Æska Suðurlands. Þrír dómarar verða í hringvallargreinum.

Samanlagður sigurvegari verður verðlaunaður í bæði barnaflokki og unglingaflokki. Árangur í 4 bestu greinum telur til stiga hjá hverjum knapa.
Pollaflokkur veður á öllum stöðum og verður honum skipt uppí teymandi og ríðandi pollar. Hver staður mun útfæra pollaflokkin á sinn hátt með tilliti til hvort það verði leikir, þrautabraut eða sýndar gangtegundir.

Þátttökuréttur er opinn öllum þeim sem uppfylla aldur miðað við aldursár:
Pollaflokkur – 9 ára og yngri
Barnaflokkur – 10 ára til 13 ára
Unglingaflokkur – 14 ára til 17 ára

Allir að taka dagsetningarnar frá og taka þátt í þessu frábæra samstarfsverkefni.

Hver viðburður verður svo auglýstur nánar þegar nær líður.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link