Líflandsdeild Léttis var haldin um helgina

  • 27. febrúar 2023
  • Fréttir
Niðurstöður frá Líflandsdeild Léttis

Líflandsdeild Léttis var haldin 25. febrúar en keppt er í 1. og 2. flokk. Samkvæmt mótshöldurum var mjög góð þátttaka í 1 flokki og fín skráning í 2 flokk. Keppnin var spennandi og ekki fyrirséð hver tæki sigurinn.

Í öðrum flokk var það Svanur Berg Jóhannsson sem vann á Stormi frá Feti með 6,40 í einkunn og í fyrsta flokk var baráttan hörð og spennandi fyrir áhorfendur að fylgjast með og fengum við að sjá tölur upp í 8,5 sem er skemmtilegt. Efst í úrslit var Vignir með Stjörnuþoku frá Litlu-Brekku með 6.90 í einkunn en úrslitin vann Atli Freyr Maríönnuson á Skrítlu frá Hveragerði með 7,66 í einkunn.

2. flokkur – Fjórgangur V2
1.Svanur Berg Jóhannsson og Stormur frá Feti 6.40
2.Þórdís Þórisdóttir og frá Miðkoti 6.10
3.Aldís Ösp Sigurjónsdóttir og Kristall frá Akureyri 6.06
4.Auðbjörn F. Kristinsson og Mist frá Eystra-Fróðholti 5.93
5.Hjörleifur H. Sveinbjarnarson og Sigur frá Steinnesi 5.43
6.Inga Ingólfsdóttir og Kjalar frá Kili 4.93

1. flokkur – Fjórgangur V2
1.Atli Freyr Maríönnuson og Skrítla frá Hveragerði 7.66
2.Vignir Sigurðsson og Stjörnuþoka frá Litlu-Brekku 7.46
3.Viðar Bragason og Kolfinna frá Björgum 7.16
4.Helga Árnadóttir og Bjarmi frá Akureyri 6.96
5.Guðmundur K. Tryggvason og Assa frá Miðhúsum 6.93
6.Sylvía Sól Guðmundsdóttir og Hrafnhetta frá Innri-Skeljabrekku 6.90

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link