Næst er fimmgangur og pollakeppni

  • 28. febrúar 2023
  • Fréttir
Blue Lagoon mótaröð Spretts

Hestamannafélagið Sprettur í samstarfi við BLUE LAGOON býður upp á mótaröð í Samskipahöllinni fyrir knapa í barna-, unglinga- og ungmennaflokki. Mánudaginn 6.mars kl.17:30 verður keppt í sérstökum pollaflokki ásamt fimmgangi F2 í yngri flokkum. Keppt verður eftir lögum og reglum LH.

Skráning hefst mánudaginn 27.febrúar á sportfengur.com og lýkur á miðnætti föstudaginn 3.mars. Ráslistar eru birtir laugardaginn 4.mars. Ekki er tekið við skráningum eftir að skráningarfresti lýkur. Skráningargjöld eru 3000 kr. fyrir barna-, unglinga- og ungmennaflokk. Frítt er fyrir polla að taka þátt. Allir knapar í pollaflokki fá þátttökuverðlaun. Afskráningar sendist á [email protected]

Allar upplýsingar um mótið má finna á Facebook viðburði mótsins – BLUE LAGOON MÓTARÖÐ SPRETTS –pollakeppni og fimmgangur.

Opnir æfingatímar fyrir keppni í fimmgangi verða þriðjudaginn 28.febrúar kl.20:00-22:00 í allri Samskipahöllinni.
Pollakeppnin fer þannig fram að riðið verður á hringvellinum og riðið zikk-zakk á milli keilna sem verður stillt upp á langhliðum. Frjálst er að mæta í búning, hvort sem það er hestur eða knapi eða báðir! Frjálst er að hafa með sér aðstoðarmann (til að teyma) eða ekki. Skipt verður í holl og munu 4-6 pollar ríða inn á í einu og leysa þrautir. Allir knapar í pollaflokki fá þátttökuverðlaun.

Eftirfarandi flokkar og greinar eru í boði:
Pollaflokkur (3 – 9 ára) – búninga og þrautabraut
Barnaflokkur (10 – 13 ára) – Fimmgangur F2
Unglingaflokkur (14 – 17 ára) – Fimmgangur F2
Ungmennaflokkur (18-21 ára) – Fimmgangur F2

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link