Blue Lagoon fimmgangur og pollatölt
Hestamannafélagið Sprettur í samstarfi við BLUE LAGOON býður upp á mótaröð í Samskipahöllinni fyrir knapa í barna-, unglinga- og ungmennaflokki.
Mánudaginn 6.mars kl.17:30 verður keppt í sérstökum pollaflokki ásamt fimmgangi F2 í yngri flokkum. Keppt verður eftir lögum og reglum LH.
Skráning er í gegnum sportfengur.com og lýkur á miðnætti föstudaginn 3.mars. Ráslistar eru birtir laugardaginn 4.mars. Ekki er tekið við skráningum eftir að skráningarfresti lýkur.
Skráningargjöld eru 3000 kr. fyrir barna-, unglinga- og ungmennaflokk. Frítt er fyrir polla að taka þátt. Allir knapar í pollaflokki fá þátttökuverðlaun.
Afskráningar sendist á [email protected]
Allar upplýsingar um mótið má finna á Facebook viðburði mótsins – BLUE LAGOON MÓTARÖÐ SPRETTS – pollakeppni og fimmgangur.
Pollakeppnin fer þannig fram að riðið verður á hringvellinum og riðið zikk-zakk á milli keilna sem verður stillt upp á langhliðum. Frjálst er að mæta í búning, hvort sem það er hestur eða knapi eða báðir! Frjálst er að hafa með sér aðstoðarmann (til að teyma) eða ekki. Skipt verður í holl og munu 4-6 pollar ríða inn á í einu og leysa þrautir. Allir knapar í pollaflokki fá þátttökuverðlaun.
Eftirfarandi flokkar og greinar eru í boði:
- Pollaflokkur (3 – 9 ára) – búninga og þrautabraut
- Barnaflokkur (10 – 13 ára) – Fimmgangur F2
- Unglingaflokkur (14 – 17 ára) – Fimmgangur F2
- Ungmennaflokkur (18-21 ára) – Fimmgangur F2
Vonumst til að sjá sem flesta í Samskipahöllinni mánudaginn 6.mars nk.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Skráning opin á Metamót Spretts