Hermann og Stjörnublikk leiða
Hermann Arason á Gusti frá Miðhúsum Myndir: AnnaG.
Samskipadeildin, eða áhugamannadeild Spretts, er tæplega hálfnuð en búið er að keppa í tveimur greinum, fjórgangi og slaktaumatölti, og eru þrjár greinar eftir, fimmgangur, tölt og gæðingaskeið. Gunnhildur Sveinbjarnadóttir vann fjórganginn og lið Vagna og Þjónustu var stigahæst það kvöldið. Slaktaumatöltið vann Hermann Arason og það kvöld var lið Stjörnublikks stigahæst.
Nóg er að stigum eftir í pottinum og mjótt á munum í einstaklingskeppninn en einungis eitt stig skilur að fyrsta og annað sætið. Efstur sem stendur er Hermann Arason með 18 stig og á eftir honum eru þær jafnar Gunnhildur Sveinbjarnadóttir og Katrín Sigurðardóttir með 17 stig.

Lið Stjörnublikks
Staðan í liðakeppninni
Lið Stig
Stjörnublikk 186
Vagnar og þjónusta 174.5
Heimahagi 159
Fasteignasalarnir Garðar Hólm og Guðlaug Jóna 152.5
Réttverk 120.5
Íslensk verðbréf 103.5
Hvolpasveitin 94
Trausti fasteignasala 83.5
Mustad Autoline 73.5
Garðaþjónusta Sigurjóns 65
Káragerði 61.5
Sveitin 57.5
Staðan í einstaklingskeppninni
Knapi Stig
Hermann Arason 18
Gunnhildur Sveinbjarnardóttir 17
Katrín Sigurðardóttir 17
Vilborg Smáradóttir 10
Kristín Ingólfsdóttir 8
Garðar Hólm Birgisson 8
Sigurður Halldórsson 8
Sanne Van Hezel 6.5
Soffía Sveinsdóttir 6.5
Hrefna Hallgrímsdóttir 5
Sigurbjörn Viktorsson 3
Þorgerður Gyða Ásmundsdóttir 3
Sævar Örn Eggertsson 2
Elín Hrönn Sigurðardóttir 1.5
Hrafnhildur B. Arngrímsdóttir 1.5
Edda Hrund Hinriksdóttir 1
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH