Höskuldargerði
Þessa fallegu mynd af Höskuldargerði sendi okkur í dag Guðlaugur Óskarsson en gerðið er eins og fólki nú er kunnugt um reyst í minningu um Höskuld á Hofsstöðum…
Myndina tók Guðlaugur á dögunum ofan úr turni Reykholtskirkju og sést vel á henni hvernig gerðið er fellt inní landslagið.
Fjöldi fólks hefur komið að þessu verkefni með 5.000.- kr framlagi og hafa í staðinn fengið DVD disk að gjöf en diskurinn inniheldur upptökur gerðar í sumar af tveimur eldri hestamönnum á fullorðnum gæðingum sínum, þeim Gísla Höskuldssyni á Hauk 29 vetra gömlum og Ingimar Sveinssyni á Pílatusi 26 vetra gömlum. Enn eru nokkrir diskar eru eftir og geta þeir sem hafa áhuga á að taka þátt i þessu góða verkefni haft samband við Guðlaug í síma 8615971 eða sent honum tölvupóst [email protected]
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH