Hrossakjötsveisla – Uppskeruhátíð

  • 8. mars 2023
  • Tilkynning

Uppskeruhátíð Hrossaræktarfélags Flóahrepps verður haldinn í Vatnsholti föstudagskvöldið 17. mars næstkomandi með tilheyrandi hrossakjötsáti og verðlaunaveitingum. Einnig ætlar Gísli Guðjónsson kynbótadómari að koma og fræða okkur um ýmislegt varðandi kynbótadóma.

Verð á mann er 3900 krónur og einnig verður tilboð á barnum. Húsið opnar kl. 20:00. Allir velkomnir.

Skráning er hjá Ágústi Inga [email protected] sími 899-5494, Atla Geir [email protected] sími 898-2256 og á netfang félagsins [email protected]. Skráningu lýkur sunnudagskvöldið 12. Mars.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link