Skeifudagur á Mið-Fossum

  • 18. apríl 2012
  • Fréttir
Skeifudagur á Mið-Fossum

Sumardaginn fyrsta, 19. apríl, verður haldinn hátíðlegur Skeifudagur Grana á Mið-Fossum og hefst dagskráin kl. 13:00.

Grani er hestamannafélag nemenda við Landbúnaðarháskóla Íslands. Þennan dag sýna nemendur í hrossarækt við LbhÍ afrakstur vetrarstarfsins í reiðmennsku og frumtamningum. Morgunblaðsskeifan verður afhent þeim nemenda LbhÍ sem stendur sig best í reiðmennsku- og frumtamninganámi vetrarins. Keppt verður um Gunnarsbikarinn, sem gefinn er af Bændasamtökum Íslands í minningu Gunnars Bjarnasonar fyrrum hrossaræktarráðunauts og kennara á Hvanneyri. Kennarar í vetur voru Randi Holaker og Haukur Bjarnason, reiðkennarar og hrossabændur á Skáney.
 
Bryddað verður upp á ýmsum skemmtilegum atriðum þennan dag. Fram mun koma sýningarsveit borgfiskra hestakvenna; Skessurnar, nemendur Reiðmannsins, sem er námskeiðaröð í hestamennsku á vegum LbhÍ, keppa um Reynisbikarinn, ásamt fleiri skemmtilegum atriðum.
 
Að lokum má geta þess að hestamannafélagið Grani mun halda happdrætti þar sem dregið verður um fjölda álitlegra folatolla. 
 
Dagurinn verður haldin í glæsilegri aðstöðu LbhÍ að Mið-Fossum í Borgarfirði en dagskrá lýkur með kaffi á Hvanneyri, í Ásgarði.
 
Þetta kemur fram í tilkynningu frá LbhÍ.
 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link