Meistaradeild Líflands í hestaíþróttum GÆÐINGASKEIÐ OG 150M SKEIÐ – LAUGARDAGINN 8. APRÍL 2023

  • 3. apríl 2023
  • Tilkynning

Meistaradeild Líflands í hestaíþróttum heldur áfram laugardaginn 8.
apríl þegar keppt verður í gæðingaskeiði og 150m skeiði á Brávöllum á Selfossi. Dagskrá hefst kl. 13.00 og hvetjum við sem flesta að koma á völlinn en einnig verður sýnt frá keppninni í beinni á Alendis.

Það var Árni Björn Pálsson sem sigraði eftirminnilega báðar greinar í fyrra með Álfamær frá Prestsbæ í gæðingaskeiði og Ögra frá Horni í 150m skeiði. Nú verður spennandi að sjá hvaða hross mæta til leiks en það kemur í ljós á miðvikudaginn kl. 20:00 þegar dregið verður í rásröð í beinni útsendingu á Alendis.

Hlökkum til að sjá ykkur á Selfossi,
stjórn Meistaradeildar Líflands.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link