Niðurstöður frá Páskatöltmóti Dreyra
Ljósmyndari: Carolin Giese - www.linaimages.com
Hestamannafélagið Dreyri hélt sitt árlega opna páskatöltmót 10. Apríl í Æðarodda. Keppt var alls í 5 flokkum og var skráning nokkuð góð, um 40 skráningar. Veðrið lék við keppendur og áhorfendur, höfðu gestir á orði að sólaráburður væri orðinn staðalbúnaður fyrir hestamannamót í Æðarodda.
Forkeppni hófst um klukkan 10:00 um morguninn með stórsýningu pollaflokks þar sem þátttakendur mættu meðal annars í ofurhetjubúningum. Keppni lauk síðan um miðjan dag með úrslitum í Opnum flokk.
Athygli vakti hversu vandaðar og vel útfærðar sýningarnar voru í barnaflokk. Sýning Kristínar Ingólfsdóttir og Ásvars frá Hamrahóli í úrslitum 1.flokks stóð síðan upp úr. Má með sanni segja að þau hafi staðið upp úr meðal jafninga með töltsýningu sinni.
Ljósmyndarinn Carolin Giese var á staðnum og tók myndir af knöpum. Hægt e að sjá myndirnar HÉR
Niðurstöður úrslita:

Ari Osterhammer Gunnarsson og Sprettur frá Brimilsvöllum

Barnaflokkur
Barnaflokkur
|
Sæti |
Keppandi |
|
1 |
Ari Osterhammer Gunnarsson / Sprettur frá Brimilsvöllum |
|
2 |
Anton Már Greve Magnússon / Viðja frá Steinsholti 1 |
|
3 |
Aldís Emilía Magnúsdóttir / Kóróna frá Birkihlíð |

Katrín Dóra Ívarsdóttir
Unglingaflokkur
|
Sæti |
Keppandi |
|
1 |
Katrín Dóra Ívarsdóttir / Týr frá Fremri-Gufudal |

2. flokkur
2.flokkur
|
Sæti |
Keppandi |
|
1 |
Erla Katrín Jónsdóttir / Harpa frá Horni |
|
2-3 |
Katrín Sveinsdóttir / Maísól frá Víðistöðum |
|
2-3 |
Edda Sóley Þorsteinsdóttir / Laufey frá Ólafsvöllum |
|
4 |
Arna Hrönn Ámundadóttir / Aspar frá Miklagarði |
|
5 |
Birna Ólafsdóttir / Hilda frá Oddhóli |

1. flokkur
1. Flokkur
|
Sæti |
Keppandi |
|
1 |
Kristín Ingólfsdóttir / Ásvar frá Hamrahóli |
|
2 |
Björg María Þórsdóttir / Styggð frá Hægindi |
|
3-4 |
Svandís Lilja Stefánsdóttir / Jaki frá Skipanesi |
|
3-4 |
Gunnar Tryggvason / Fönix frá Brimilsvöllum |
|
5 |
Arnhildur Halldórsdóttir / Heiðrós frá Tvennu |

Opinn flokkur
Opinn flokkur
|
Sæti |
Keppandi |
|
1 |
Jón Herkovic / Elíta frá Ásgarði vestri |
|
2 |
Þórdís Fjeldsteð / Skör frá Kletti |
|
3 |
Sævar Haraldsson / Selja frá Vorsabæ |
|
4 |
Tinna Rut Jónsdóttir / Forysta frá Laxárholti 2 |
|
5 |
Linda Hrönn Reynisdóttir / Tangó frá Reyrhaga |
Ljósmyndari: Carolin Giese
www.linaimages.com
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Skráning opin á Metamót Spretts